51. Sambandsþing SUF - Ný stjórn og ályktanir

Sambandsþing Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) fór fram helgina 10.–11. október á Hótel KEA á Akureyri. Þar komu saman ungt Framsóknarfólk til að kjósa formann og stjórn sambandsins og móta stefnu þess fyrir komandi starfsár.

Ályktað var meðal annars um að reisa hesthús við Austurvöll í ljósi íþyngjandi skattheimtu á bifreiðir í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Einnig var ályktað um skattfrjálst ár ungmenna, leggja niður vsk á byggingarefni til nýbyggingar, setja kröfu um íslenskukunnáttu innflytjenda og lögleiðingu hnefaleika á Íslandi.

Á sambandsþinginu var einnig farið í vísindaferð í Skógaböðin og haldinn hátíðarkvöldverður. Á þingið mættu einnig Lilja Dögg, formaður Framsóknar, þingmennirnir Halla Hrund og Þórarinn Ingi, sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar á Akureyri, Sunna Hlín og Gunnar Már, og ritari Framsóknar, Lilja Rannveig.


Ný stjórn

Hrafn Splidt Þorvaldsson var endurkjörinn formaður SUF, en hann var einn í framboði til embættisins.

Alls bárust 18 framboð til stjórnarsetu og var kosið í stjórn. Stjórn hefur haldið sinn fyrsta stjórnarfund þar sem ný framkvæmdastjórn var skipuð

Í nýrri stjórn SUF sitja:

  • Eiríkur Kúld Viktorsson, varaformaður

  • Atli Ársælsson, ritari

  • Andrea Edda Guðlaugsdóttir, gjaldkeri

  • Þórunn Dís Þórunnardóttir, viðburðastjóri

  • Steinþór Ólafur Guðrúnarson, kynningarstjóri

  • Andrés Páll Ásgeirsson

  • Árdís Lilja Gísladóttir

  • Björg Ósk Gunnarsdóttir

  • Diljá Þorvaldsdóttir

  • Héðinn Höskuldsson

  • Steinar Óli Sigfússon

  • Ýmir Örn Hafsteinsson

Einnig sitja 12 manns í varastjórn SUF.

Myndir frá sambandsþinginu:


Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á 51. sambandsþingi SUF

1.

Allir byggja! 

Í núverandi efnahagsþrengingum og stöðnun á byggingarmarkaði er mikilvægt að stórauka uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Sambandsþing SUF leggur til að enginn virðisaukaskattur verði greiddur af byggingarefni til nýbygginga undir þjóðarátakinu Allir byggja.

SUF vill með þessari ívilnun svara brýnni þörf á fasteignamarkaði og í leiðinni ýta undir hvata fyrir byggingaraðila til þess að hefja framkvæmdir sem fyrst. 

2.

Sambandsþing SUF telur að ungu fólki á aldrinum 18–35 ára eigi að standa til boða að velja eitt skattfrjálst ár, þar sem það greiðir ekki tekjuskatt.
Markmiðið er að auðvelda ungu fólki að safna fyrir fyrstu fasteign. Með þessu gæti fólk tímabundið aukið vinnuframlag sitt og safnað meira eigin fé það ár sem það velur fyrirfram.

3.

Sambandsþing SUF ályktar að sambærileg ákvæði eigi að gilda um mætingu þingmanna og sveitarstjórnarfulltrúa á þing- og nefndarfundi. Kjör á Alþingi Íslendinga er ábyrgðarstaða. Það er því óásættanlegt ef mæting þingmanna til starfa fellur undir það sem ekki telst eðlilegt á almennum vinnumarkaði.Ef þingmaður hyggst sinna öðrum störfum eða embættum á meðan þingmennska hans stendur yfir og getur því ekki sinnt þingstörfum með fullnægjandi hætti er rétt að varamaður taki sæti hans á Alþingi á meðan svo þingið sé fullmannað. 

Sambandsþing SUF telur að virða eigi þrískiptingu ríkisvaldsins samkvæmt 2. gr. stjórnarskrár Íslands og breyta lögum þannig að þingmenn sem skipaðir eru ráðherrar fari sjálfkrafa í tímabundið leyfi frá þingsetu á meðan þeir gegna embætti ráðherra.

4.

Sambandsþing SUF vill að gerðar verði auknar kröfur til innflytjenda um að þeir læri íslensku og aðlagist íslensku samfélagi og menningu. Ungt Framsóknarfólk leggur til að ríkisstjórnin verji auknu fjármagni í að auka aðgengi að íslenskunámi og sveitarfélög í samstarfi við ríkið bjóði foreldrum af erlendum uppruna upp á gjaldfrjáls íslenskunámskeið með það að markmiði að draga úr þörf á túlkaþjónustu til lengri tíma. 

Ungt Framsóknarfólk leggur jafnframt til að löggjöf um túlkaþjónustu verði breytt þannig að réttur einstaklinga til túlkaþjónustu verði takmarkaður við ákveðinn tíma á Íslandi. Réttur til túlkaþjónustu verði þó áfram tryggður sé hún nauðsynleg, meðal annars vegna mála sem tengjast barnavernd og réttaröryggi.

5.

Íslenskt afreksfólk á ekki að þurfa flugmiða til að mega keppa sem atvinnufólk.

Sambandsþing SUF ályktar að bann við atvinnuhnefaleikum verði afnumið og keppni fullorðinna heimiluð undir ströngu leyfis-, öryggis- og heilbrigðiseftirliti. Íslenskt afreksfólk á að geta keppt hér heima í öruggri umgjörð. Regluverkið verði unnið með ÍSÍ, Hnefaleikasambandi Íslands og heilbrigðisyfirvöldum og byggi meðal annars á reynslu Norðmanna.

6.

Ef við viljum hraðann af götunum verðum við að opna leiðina inn á brautirnar.

Sambandsþing SUF ályktar að ríki og sveitarfélög greiði fyrir uppbyggingu akstursíþrótta og tryggi aðgengi að öruggum æfinga- og keppnissvæðum. Beina þarf áhuga á hraða af almennum vegum og inn í skipulagt íþróttastarf þar sem öryggi, ábyrgð og fræðsla eru í fyrirrúmi. Akstursíþróttir eiga fullgildan sess í íslensku íþróttastarfi.

7. 

Sambandsþing SUF ályktar að þjálfun gervigreindar (LLM, Diffusion módel, talgervlar, o.fl.) á höfundarréttarvernduðum gögnum og notkun hennar til að búa til efni sem er villandi eða niðrandi gagnvart almennum einstaklingum ætti ekki að fá að starfa eða selja þjónustur sínar hér á landi.

Við leggjum til að þjálfunargögnin séu opin til úrskurðunar um hvort höfunda- eða persónuverndarlög hafi verið brotin

Þetta má innihalda módel sem hægt er að nota til að búa til talgervla af fólki sem nýtast í fjárkúgun eða falsa sakfellandi upptökur.

8.

Endurskoðun menntakerfisins 

Sambandsþing SUF telur að endurskoða þurfi íslenskt menntakerfi með það að markmiði að bæta námsárangur barna og efla grunnfærni þeirra. Sambandsþingið telur að leikskólaskylda eigi að hefjast við fjögurra ára aldur svo tryggt sé að öll börn hefji grunnskólagöngu með sterkari og jafnari grunn. Jafnframt þarf að færa aukna áherslu á læsi og lestrarnám inn í leikskólann.

Þá þarf að auka námskröfur í grunnskólum og skoða hvort hluti námsefnis sem nú er kenndur á framhaldsskólastigi eigi heima fyrr á skólagöngunni. Íslensk börn eiga að geta staðið jafnfætis jafnöldrum sínum í öðrum löndum. Til þess þarf að tryggja gott aðgengi að vönduðum námsgögnum og leggja áherslu á kjarnafög svo sem íslensku og stærðfræði á fyrstu skólaárunum. 

Sambandsþingið telur jafnframt að ráðast eigi í samanburðargreiningu á íslenska menntakerfinu og menntakerfum þeirra ríkja sem ná góðum árangri í alþjóðlegum mælingum, svo sem Eistlands og Írlands, með það að markmiði að greina hvað megi læra af þeim og hvar tækifæri séu til umbóta hér á landi.

9.

Ungt Framsóknarfólk telur tímabært að reist verði hesthús við Austurvöll í ljósi íþyngjandi skattheimtu á bifreiðir í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.

10.

Mannúðarleyfi fyrir úkraínskra karlmenn

Sambandsþing SUF  ýsir óánægju sinni með reglugerðarbreytingu dómsmálaráðherra, sem felur í sér að ef úkraínskir karlmenn hafa ekki lokið herskyldu fái þeir ekki vernd hér á landi. Fólk sem flýr stríð á að eiga rétt á vernd óháð þjóðerni og stefna stríðshrjáðra landa ætti ekki að hafa áhrif á stöðu einstaklinga sem flóttafólk

11.

Samningur Trumps og Pútíns um olíukaup

Sambandsþing SUF telur að samningurinn er augljóst pólitískt útspil Trump til að lækka olíuverð fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum sem mun hafa raunveruleg áhrif á stríðið í Úkraínu og getur verið til þess fallið að framlengja það.

12.
Umsókn Íslands að Evrópusambandinu

Ungt Framsóknarfólk styður þá þingsályktunartillögu sem forystufólk stjórnarandstöðuflokkanna lagði fram um að ríkisstjórn Íslands eigi með ótvíræðum hætti að tilkynna Evrópusambandinu að Ísland sé ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu.

13.

Breyting á kjördæmaskipuninni, 

Sambandsþing SUF ályktar að heildarendurskoðun á skiptingu kjördæma með það að leiðarljósi að styrkja byggðir landsins. 

Kjördæmi í dag eru of stór og er því nauðsynlegt að skoða skipunina með hagsmuni kjördæmanna í huga. Þingið hafnar því algjörlega að fjölga þingmönnum á höfuðborgarsvæðinu. Vert væri að skoða að taka upp gömlu kjördæmaskipanina sem var í gildi frá 1944-1999

14.

Sambandsþing Sambands ungra framsóknarmanna krefst úrbóta þegar kemur að eftirliti á leikvöllum landsins

BSI, Nordic Playground Institute og aðrir fagaðilar hafa umsjón með eftirliti með gæðum og öryggi leikvalla landsins. Vandamálið er þó það að engin viðurlög eru við ef engar úrbætur eru gerðar. Þörf er á að koma upp kerfi sem veitir aðalskoðendum heimild til að loka leiktækjum og ákveðnum svæðum á leikvöllum ef þau standast ekki öryggiskröfur fagaðila um leiktæki og leiksvæði.

15.

Sambandsþing Sambands ungra framsóknarmanna hvetur til þess að ríkisstjórnin fari í allsherjarátak í því að markaðssetja og auka verðmætasköpun í kringum íslenska ull. 

Íslenska sauðfjárullin hefur haldið lífinu í íslensku þjóðinni frá örófi alda. Bandið sem er unnið úr íslensku sauðkindinni er því þjóðargersemi og það þarf að verja. Bændur í dag fá lítið fyrir sinn snúð af ullinni á meðan allir eiga að minnsta kosti eina lopapeysu inni í skáp. Einnig þarf að vörumerkjavernda íslensku lopapeysuna, því það er ósættanlegt að sjá „íslenska“ lopapeysu selda á Temu úr gerviefnum en með mynstrið frá ömmu Gunnu.

16.

Sambandsþing SUF skorar á stjórnvöld að leyfa land- og eldisbændum að verjast gegn vágestum sem hafa neikvæð áhrif á uppskeru og búfénað. 

Vágestir teljast t.d. álftir, minkar, gæsir og refir. Sérstaklega þarf að skoða breytingar á veiðiheimild eða undanþágu frá núgildandi lögum á veiðum á álftum til að verja ræktunarland. Fara þarf í rannsóknir á áhrifum tegundarinnar á landbúnað og önnur vistkerfi, þ.á.m. annað fuglalíf.

17.

Sambandsþing SUF ályktar að það ætti að vera skilyrði að á þjóðvegi 1 eigi að vera að minnsta kosti 2 metra vegaxlir hvor sínum megin vegarins.

Vegir landsins eru langflestir of mjóir og ekkert svigrúm fyrir nein frávik frá venjulegri umferð. Það er mikið öryggisatriði að hafa pláss fyrir að geta keyrt út af akrein til að hleypa almennri umferð fram hjá ef ske kynni að bíllinn bilaði. Einnig er nauðsynlegt að gefa hægari ökutækjum, svo sem dráttarvélum, pláss til að geta hleypt umferð fram úr sér án mikillar áhættu. Þetta er því mikið öryggisatriði.



Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Málefnin

Starfið

Framsókn