Alþingi samþykkir skýrslubeiðni Ingibjargar um gæði á hjúkrunarheimilum

Fréttir

Alþingi samþykkti fimmtudaginn 15. október skýrslubeiðni Ingibjargar Isaksen um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum. Þar er óskað eftir að heilbrigðisráðherra leggi fram heildstæða mynd af því hvernig gæði eru skilgreind, mæld og tryggð og hvort mönnun, fagleg þjónusta og aðbúnaður geri heimilunum kleift að veita íbúum örugga, einstaklingsmiðaða og virðulega þjónustu.

Ingibjörg lagði skýrslubeiðnina fram ásamt níu öðrum þingmönnum. Meginmarkmiðið er að tryggja að fyrirhuguð fjölgun hjúkrunarrýma skili ekki aðeins fleiri rýmum heldur einnig þjónustu sem styður við lífsgæði og reisn íbúa.

Fjöldi rýma segir ekki alla söguna

Í greinargerð skýrslubeiðninnar er bent á að eldra fólki fjölgi og eftirspurn eftir þjónustu aukist. Uppbygging hjúkrunarrýma sé því mikilvæg, en fjöldi þeirra einn og sér segi ekki til um gæði þjónustunnar sem íbúar fá.

Óskað er eftir mati á því hvort áætlanir um mannafla, fagþekkingu og sérfræðiþjónustu séu til staðar þegar ný rými eru tekin í notkun. Einnig verði skoðað hvort löng bið eftir hjúkrunarrými leiði til þess að fólk hafi meiri og flóknari þjónustuþörf við flutning á hjúkrunarheimili og hvaða áhrif það hafi á umönnun og mönnun.

Lífsgæði og rödd íbúa í fyrirrúmi

Skýrslan á meðal annars að varpa ljósi á hvernig þjónustan styður við sjálfsákvörðunarrétt, friðhelgi og þátttöku íbúa í ákvörðunum um eigið líf. Óskað er eftir upplýsingum um hvort reynsla og ánægja íbúa séu mæld reglulega og með sambærilegum hætti milli heimila og hvernig niðurstöðurnar séu nýttar til umbóta.

Þá verði gerð grein fyrir samráði og upplýsingagjöf til aðstandenda og því hvernig ábendingar og kvartanir eru skráðar, greindar og nýttar. Sérstaklega verði skoðað aðgengi að virkni, félagslegri þátttöku og endurhæfingu, auk gæða einstaklingsmiðaðrar þjónustu við fólk með heilabilun.

Mönnun, öryggi og lyfjanotkun skoðuð í samhengi

Óskað er eftir yfirliti yfir þróun mönnunar undanfarin fimm ár, faglega samsetningu starfsfólks, starfsmannaveltu og aðgengi að heilbrigðisstarfsfólki og sérfræðiþjónustu. Metið verði hvort mönnun og hæfni taki nægilegt mið af hjúkrunarþyngd og flóknari þjónustuþörf íbúa og hvort samfella í umönnun sé tryggð.

Jafnframt verði fjallað um öryggisatvik og slys, orsakir þeirra og forvarnir. Áhersla er lögð á að ekki nægi að telja atvik heldur þurfi að greina áhættuþætti og tryggja að lærdómur leiði til umbóta í umönnun, aðbúnaði og verklagi.

Lyfjaöryggi og þróun geðlyfjanotkunar verði einnig skoðuð, þar á meðal regluleg lyfjarýni, eftirfylgni með aukaverkunum og aðgengi að öðrum úrræðum. Í greinargerð er áréttað að lyfjanotkun sé einn þáttur í heildstæðu mati á gæðum þjónustunnar, en ekki sjálfstætt meginviðfangsefni skýrslubeiðninnar.

Samanburðarhæfar upplýsingar og skýr ábyrgð

Einn þáttur skýrslubeiðninnar er mat á því hvort setja megi fram samræmt mælaborð gæðavísa. Slíkt yfirlit gæti gert stjórnvöldum, rekstraraðilum, íbúum og aðstandendum kleift að fylgjast með þróun gæða og bera saman þjónustu með sanngjörnum hætti. Við samanburðinn verði tekið tillit til mismunandi hjúkrunarþyngdar og þjónustuþarfa íbúa.

Loks er óskað eftir upplýsingum um aðgerðir stjórnvalda til gæðaumbóta undanfarin fimm ár og mælanlegan árangur þeirra. Skýrslan á einnig að fela í sér mat á frekari aðgerðum, ábyrgð á framkvæmd þeirra og því hvernig fylgst verði með árangri.

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Málefnin

Starfið

Framsókn