Anton og Magnús leiða lista Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ

Anton Guðmundsson, stjórnsýslufræðingur og formaður Framsóknarfélags Suðurnesjabæjar, leiðir áfram lista Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ. En tillaga uppstillingarnefndar var samþykkt á fjölmennum félagsfundi nú í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.
Magnús Sigfús Magnússon, verkalýðsformaður og bæjarfulltrúi, skipar annað sæti listans.
Í ræðu á fundinum sagði Anton að fram undan væru spennandi tímar.
„Það er gríðarlega ánægjulegt að við skulum bjóða fram svona framsækinn og öflugan lista,“
„Ég tel mikilvægt að sveitarfélagið sé rekið af ábyrgð og festu, með skýra framtíðarsýn að leiðarljósi. Við viljum leggja áherslu á sterka grunnþjónustu, öflug skólamál, bætt framboð húsnæðis og skilvirka stjórnsýslu og rekstur.
Á sama tíma teljum við brýnt að leita leiða til að lækka álögur á íbúana og tryggja að rekstur sveitarfélagsins sé eins hagkvæmur og skilvirkur og mögulegt er. Með aukinni hagkvæmni og betri nýtingu fjármuna getum við skapað meira svigrúm til framkvæmda og uppbyggingar.“
Reynsla og nýliðun besta blandan
Magnús sagði það mikið tilhlökkunarefni að fá að vinna með því fólki sem skipar sætin á listanum.
„Listinn samanstendur af nýju og öflugu fólki ásamt fólki með reynslu, en allir eiga það sameiginlegt að vilja efla og bæta sveitarfélagið.
Ég trúi því að við séum að ganga inn í tíma þar sem hugrekki og samvinna verða drifkraftur samfélagsins – þar sem fólk hefur raunveruleg áhrif og mótar sameiginlega framtíð okkar.“
Listinn sem samþykktur var í kvöld:
1. Anton Kristinn Guðmundsson – Stjórnsýslufræðingur og bæjarfulltrúi
2. Magnús Sigfús Magnússon – Verkalýðsformaður og bæjarfulltrúi
3. Ólöf Ólafsdóttir – Vaktstjóri í íþróttamiðstöð
4. Sindri Lars Ómarsson – Grunnskólakennari
5. Ewa Krysztopa – Sundlaugarvörður
6. Gísli Jónatan Pálsson – Húsasmiður
7. Óskar Helgason – Pípulagningamaður
8. Þórsteina Þöll Árnadóttir – Íþróttarfræðingur
9. Guðrún Sif Pétursdóttir – Deildarstjóri í leikskóla
10. Gissur Þór Grétarsson – Fyrrv. Vélstjóri og sjómaður
11. Bjarki Dagsson – Tölvunarfræðingur
12. Gunnlaug María Óskarsdóttir – Stuðningsfulltrúi
13. Róbert Páll Arason – Húsasmiður
14. Bylgja Dröfn Olsen Jónsdóttir – Bókari
15. Hallur Jónas Gunnarsson – Formaður Hollvinasamtaka Reykjanesvita
16. Guðrún Elva Friðriksdóttir – Matráður
17. Haraldur Hinriksson – Fyrrv. Bæjarverkstjóri
18. Guðjón Ólafsson – Fyrrv. Sjómaður og útgerðarmaður

