Ástæður þess að þú ættir að setja X við B á kjördag

Greinar

Undanfarnar vikur hefur B- listi Framsóknar í Múlaþingi unnið hörðum höndum að stefnuskrá til að kynna kjósendum og langar okkur að deila með ykkur okkar helstu markmiðum.

Í fjármálum leggur Framsókn áherslu á hagkvæman rekstur og gagnsæi í stjórnsýslu. Flokkurinn vill lækka fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði í áföngum úr 0,45% í 0,40% á kjörtímabilinu. Samhliða verður farið í greiningu á rekstri sveitarfélagsins með það að markmiði að sjá hvort tækifæri séu til hagræðingar í rekstri.

Áfram verður lögð áhersla á skipulags- og húsnæðismál með því til dæmis að tryggja fjölbreytt framboð lóða fyrir íbúðar-, atvinnu- og þjónustustarfsemi í öllum byggðarkjörnum sveitarfélagsins.

Á næstu árum verður einnig ráðist í mikilvægar framkvæmdir í skóla- og íþróttamannvirkjum. Þar má nefna endurbætur á leikskólanum á Tjarnarlandi á Egilsstöðum, viðbyggingu við Bjarkatún á Djúpavogi og lokafrágang nýs Seyðisfjarðarskóla. Þá verður uppbyggingu íþróttamannvirkja á Egilsstöðum flýtt og unnið að nýrri búningsaðstöðu á Djúpavogi í samstarfi við Neista.

Innviðauppbygging er stór þáttur í stefnunni. Framsókn vill halda áfram að efla hafnaraðstöðu á Seyðisfirði og Djúpavogi, bæta göngustíga og gangstéttir og tryggja betra aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Þá er lögð sérstök áhersla á áframhaldandi jarðhitaleit á Djúpavogi, Seyðisfirði og Borgarfirði eystri.

Í málefnum barna og fjölskyldna leggur Framsókn áherslu á öflugt skólastarf og fjölskylduvænt samfélag. Börnum verður áfram tryggt leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og unnið verður að lausnum sem mæta þörfum bæði barna og starfsfólks. Einnig verður lögð áhersla á samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs til að auðvelda þátttöku barna, sérstaklega þeirra sem búa í dreifbýli.

Helstu áherslur í íþrótta- og tómstundamálum eru meðal annars:

· Hækkun frístundastyrks um 10.000 krónur í tveimur áföngum

· Áframhaldandi verkefni undir merkjum „Allir með“

· Aukinn stuðningur við börn sem búa langt frá skipulögðu íþróttastarfi

· Endurskoðun samninga um íþróttamál til að tryggja betri nýtingu fjármagns

Framsókn leggur einnig ríka áherslu á velferð eldra fólks. Verkefnið „Gott að eldast“ verður áfram styrkt og staða ráðgjafa í málefnum eldra fólks fest í sessi. Markmiðið er að tryggja eldri íbúum betri þjónustu, virkari þátttöku og aukin lífsgæði.

Í atvinnu- og samfélagsmálum vill Framsókn stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum og tryggja að opinber störf og þjónusta ríkisins haldist í sveitarfélaginu. Jafnframt er lögð áhersla á að efla þátttöku innflytjenda með stofnun innflytjendaráðs sem verður vettvangur fyrir samráð, aukið jafnræði og betri þjónustu.

Á sviði menningar verður áfram stutt við Minjasafn Austurlands, Tækniminjasafnið og bókasöfn sveitarfélagsins. Framsókn vill tryggja að menningarstofnanir verði lifandi samfélagsmiðjur sem efla samfélagsanda og varðveita sögu og menningu svæðisins.

Loks leggur Framsókn áherslu á öfluga hagsmunagæslu gagnvart ríkinu. Þar ber hæst krafa um framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng og Öxi, auk aukins fjármagns til vegamála, snjómoksturs og geðheilbrigðisþjónustu. Með markvissri uppbyggingu, ábyrgum rekstri og sterkri framtíðarsýn vill Framsókn skapa öflugt og fjölskylduvænt samfélag í Múlaþingi til framtíðar. Stefnuskránna í held sinni má finna hér www.framsokn.is/blog/stefnuskra-framsoknar-i-mulathingi

Hlökkum til að hitta ykkur sem flest á komandi dögum

Fyrir hönd B- lista Framsóknarflokks

Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti