Áttu áttu?
Greinar

Áttu bíl?
Áttu heimili?
Áttu fyrirtæki?
Áttu stóra fjölskyldu?
Ferðu stundum í baðlón á afmælisdögum?
Þá ert þú hinn fullkomni aðili til að greiða hærri skatt samkvæmt nýjasta fjárlagafrumvarpinu.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Viðreisnar eru það almenningur og fyrirtæki í landinu sem eiga að greiða fyrir hækkanirnar í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Hvað meina ég?
Hærra fasteignalán vegna bankaskatts, hærri verðbólgu og vaxtabætur falla niður.
Dýrara að keyra í vinnuna og leikskólann með hærra kílómetragjaldi og kolefnisgjaldi.
Barnabætur standa í stað þriðja árið í röð (og eru því í raun að rýrna að raunvirði).
Dýrara að ferðast um landið því að það á að hækka skatt á baðlón og setja náttúrupassa á þekktustu staði landsins.
Höggið er mest á barnafjölskyldur.
Hjón með ung börn verða fyrir mesta högginu. Þegar fólk er að koma undir sig fótunum með nýju heimili og stækkandi fjölskyldu er lítið svigrúm í heimilisbókhaldinu. Það að barnabætur standi í stað á meðan að allt annað, eins og leikskólagjöld og íþróttagjöld, hækka þýðir það að ríkisstjórnin er að minnka ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna.
Í gær opnaði vefurinn utreikningur.is til þess að við getum öll séð hver áhrifin af fjárlagafrumvarpi Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins eru á heimilin. Þar sést greinilega að barnabæturnar hafa mikil áhrif á fjárhag heimilanna.
Ríkisstjórnin lofaði því að hækka ekki skatta á almenning.
Hvað er þá þetta?
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, ritari Framsóknarflokksins og varaþingmaður.



