Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið - tökum á því strax

Greinar

Atvinna er ein mikilvægasta undirstaða farsældar hvers samfélags. Hún snýst ekki aðeins um tekjur heldur sjálfstæði, þátttöku, félagsleg tengsl og þá tilfinningu að geta lagt sitt af mörkum. Þetta á ekki síst við um ungt fólk. Þess vegna eigum við að taka mjög alvarlega þær vísbendingar sem nú berast um vaxandi atvinnuleysi meðal ungs fólks.

Ísland hefur um langt skeið notið þeirrar sérstöðu að atvinnuþátttaka er með því mesta sem þekkist. Það er ein af meginskýringunum á þeirri miklu efnahagslegu og félagslegu farsæld sem við höfum byggt upp. Þegar fólk hefur atvinnu verða til verðmæti, tekjur heimilanna aukast og grundvöllur velferðarkerfisins styrkist.

Nýjar tölur Hagstofunnar í þessum efnum ættu að vekja þjóðarathygli. Í maí sl. mældist árstíðarleiðrétt atvinnuleysi meðal 16-24 ára 13% eða um 5.000 manns. Á sama tíma fyrir um ári var hlutfallið 4,9% eða um 2.000 manns. Þegar horft er lengra aftur blasir þróunin enn skýrar við. Atvinnuleysi þessa aldurshóps var 8,1% á fyrsta ársfjórðungi 2024, 12,2% ári síðar og komið í 18% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Sé einungis horft til höfuðborgarsvæðisins blasir við enn verri staða en þar var hlutfallið 21,1%.

Vissulega fjölgar ungu fólki í atvinnuleit á vorin þegar skólastarfi lýkur. Það skýrir hins vegar ekki þessa alvarlegu þróun. Öll viðvörunarljós eru farin að blikka. Við vitum að langvarandi atvinnuleysi snemma á starfsævinni getur haft áhrif á tekjur, færni og möguleika fólks árum saman. Þess vegna skiptir máli að bregðast við áður en vandinn festist í sessi.

Gildi Framsóknarflokksins eru einföld og sígild: Vinna, vöxtur og velferð. Þessi gildi hafa reynst íslensku samfélagi farsæl enda mælast lífskjör á Íslandi í efsta sæti á lista Sameinuðu þjóðanna. Það á því að vera forgangsverkefni að skapa fleiri tækifæri fyrir ungt fólk. Atvinnulífið og stjórnvöld þurfa að taka höndum saman og fjölga nýliðastörfum, styrkja starfsnám og efla iðn- og tæknimenntun. Skoða þarf tímabundna hvata fyrir fyrirtæki sem ráða ungt fólk til starfa og umfram allt skapa efnahagslegt umhverfi þar sem fyrirtæki treysta sér til að fjárfesta, vaxa og ráða fólk. Þetta er það sem atvinnustefna og hagstjórn stjórnvalda á að taka á.

Forgangsröðun í stjórnmálum skiptir máli. Þegar atvinnuleysi ungs fólks eykst með þessum hætti á ríkisstjórnin að beina öllum sínum kröftum að því að snúa þróuninni við. Þetta er ekki tíminn til að verja gríðarlegri pólitískri orku og fjármunum í langa ESB-vegferð. Skórinn kreppir hér heima og því ber að sinna. Unga fólkið okkar þarf ekki fleiri nefndir eða fleiri fyrirheit. Það þarf tækifæri. Það þarf störf. Og þau þarf núna. Framsókn mun styðja allar góðar hugmyndir og aðgerðir í því ljósi.


Höfundur er formaður Framsóknar.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 13. ágúst 2026