Davíð Sigurðsson er oddviti Framsóknar í Borgarbyggð

Á félagsfundi Framsóknar 12. mars 2026 var samþykkt að Davíð Sigurðsson, bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi, verði oddviti á framboðslista Framsóknar í Borgarbyggð í komandi sveitarstjórnarkosningum.
,,Ég þakka kærlega það traust sem mér er sýnt með þeirri ákvörðun að samþykkja að ég leiði lista flokksins og ég hlakka til að starfa með öflugu fólki að áframhaldandi uppbyggingarskeiði í sveitarfélaginu," segir Davíð.



