Eldhúsdagur: Ræða Stefáns Vagns
Fréttir

Virðulegur forseti. Nú þegar sumarið hefur gengið í garð finnum við enn á ný hversu sérstakt íslenska sumarið er. Það kemur ekki alltaf með miklum hávaða eða látum og augljóslega ekki með miklum hita en á þessum tíma árs sjáum við líka unga fólkið okkar útskrifast og stíga stór skref inn í framtíðina. Þetta er tími gleði, vonar og nýrra tækifæra og þegar við horfum á unga fólkið okkar þá horfum við á framtíð Íslands.
Verkefni stjórnmálanna er að rækta landið okkar, byggja það upp og skila því betra til næstu kynslóðar, en til þess þurfa stjórnmálin að hafa áttavita. Stjórnmál ganga út á það að gera betur í dag en í gær. Stjórnmálin þurfa að átta sig á þeim helstu áskorunum sem heimili landsins standa frammi fyrir og hvernig á að fjárfesta í framtíð unga fólksins. Því miður blasir nú við að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er týnd og ófær um að forgangsraða. Ríkisstjórnin var í raun kosin til þess að ná tökum á verðbólgunni. Forsætisráðherra mætti sjálf með stóru orðin, með sleggjuna á lofti og lofaði að taka á verðbólgunni með festu. En sú barátta hefur snúist í höndunum á ríkisstjórninni. Verðbólgan hefur reynst þessari ríkisstjórn erfið. Stýrivextir hafa hækkað. Heimilin finna fyrir því í hverjum mánuði. Fjölskyldur finna fyrir því þegar greiðslubyrði hækkar. Fyrirtækin finna fyrir því þegar fjárfestingar verða erfiðari og unga fólkið finnur fyrir því þegar draumurinn um eigið húsnæði færist fjær. Það sorglega er að stór hluti vandans er heimatilbúinn. Hækkanir á opinberum gjöldum og sköttum fóru beint út í verðlagið og einhvers konar Íslandsmet var sett í vexti opinberra útgjalda eða um 143 milljarða á einu ári.
Kæru landsmenn. Þegar stjórnvöld hækka kostnaðinn hjá sér og benda svo í allar áttir og á alla aðra um orsök vandans er það ekki ábyrg efnahagsstjórn, þvert á móti. Þegar fólk ræður ekki við verkefnið sem það var kosið til þess að leysa, hvað gerir það þá? Það reynir að dreifa athyglinni. Það reynir að færa umræðuna eitthvert annað og helst út fyrir landsteinana. Það er einmitt það sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur gert. Í stað þess að einbeita sér að verðbólgunni, vöxtunum, húsnæðismálunum og stöðu heimilanna hefur ríkisstjórnin sett af stað Evrópuvegferð með miklum tilkostnaði og pólitískri spennu. Við skulum hafa það alveg á hreinu að þetta er sami forsætisráðherra og lagði áherslu á að slík vegferð ætti ekki að hefjast nema breiður stuðningur væri til staðar og efnahagsmálin væru í traustum farvegi. Hvernig væri ef hæstv. forsætisráðherra færi að fylgja eigin ráðgjöf? Það má ekki gleyma gjaldmiðlamálum. Fullveldi og framtíðarskipan Íslands eru ekki hliðarverkefni. Þetta eru stór mál sem snerta sjálfstæði þjóðarinnar, atvinnuvegina okkar og stöðu Íslands í umheiminum. Slík mál á að ræða af virðingu. Slík mál á að undirbúa af fagmennsku og slík mál á ekki að nota til að fela misheppnaða efnahagsstjórn.
Kæru landsmenn. Forsætisráðherra er að takast að kljúfa þjóðina í tvær fylkingar á sama tíma og þjóðin þarf samstöðu. Okkur í Framsókn þykir þetta miður. Við erum samvinnuflokkur. Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar fólk talar saman, hlustar hvert á annað og vinnur saman að hagsmunum landsins alls. Við trúum ekki á sundrungu, við trúum á samvinnu.
Þrátt fyrir allt þetta er framtíð Íslands björt. Hún er björt vegna þess að landið okkar er gjöfult. Hún er björt vegna þess að hér býr dugmikið fólk. Hún er björt vegna þess að Ísland stendur á sterkum grunni. Ísland er efst á lista Sameinuðu þjóðanna yfir lífskjör og hér ríkir jöfnuður, sem er ekki sjálfsagt. Þetta er árangur kynslóðanna sem hafa unnið, byggt upp, menntað sig, tekið áhættu, skapað störf og staðið vörð um samfélag þar sem enginn á að vera skilinn eftir.
Það er forgangsmál hjá okkur í Framsókn að styðja við eldri kynslóðir sem hafa byggt landið okkar upp eins vel og raun ber vitni. Grunngildi Framsóknar, vinna, vöxtur, velferð, hafa elst vel og eiga svo sannarlega við í dag. Vinnan sem er grundvöllur sjálfstæðisins, atvinnuleysið sem er eitur í beinum okkar Framsóknarfólks. Þess vegna höfum við þungar áhyggjur af vaxandi atvinnuleysi og ekki síst meðal ungs fólks. Unga fólkið á ekki að mæta framtíðinni með óöryggi heldur sem tækifæri. Vöxturinn skiptir líka máli. Samfélag sem hættir að vaxa hættir að skapa ný tækifæri og við viljum sjá Ísland vaxa og dafna. Við viljum öflugt atvinnulíf, sterkari byggðir, fjölbreyttari útflutning, nýsköpun, orkuöryggi og skapandi greinar sem bera hróður Íslands víðar. Og velferðin, virðulegi forseti, í hjarta okkar stefnu. Framsókn er félagshyggjuflokkur á miðju íslenskra stjórnmála. Við erum stolt af íslenska velferðarkerfinu en því miður er stoltið ekki nóg.
Kæru landsmenn. Íslenska sumarið minnir okkur á að lífið endurnýjar sig. Landið grænkar og birtan lengist. Ungt fólk heldur út í lífið með von í hjarta. Verkefni stjórnmálanna er að búa til von. Við í Framsókn ætlum að gera þetta með skýrum áttavita, vinnu, vexti og velferð, með samvinnu í stað sundrungar, með ábyrgð í stað flótta, með trú á Íslandi, fólkinu í landinu og framtíðinni sem við getum byggt upp saman.



