Framboðslisti Framsóknar á Akureyri samþykktur
Fundur í Fulltrúaráði Framsóknarfélaganna á Akureyri, fimmtudaginn 26. mars, samþykkti einróma tillögu kjörstjórnar um framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 31. maí. Efsta sæti listans skipar Guðmundur Baldvin Guðmundsson, bæjarfulltrúi, í öðru sæti er Ingibjörg Isaksen, forstöðumaður og í því þriðja Siguróli Magni Sigurðsson, nemi. En kosið var á almennum félagsfundi framsóknarfélaganna 15. mars í 5 efstu sætin á framboðslistanum.
Framboðslistinn er þannig skipaður:
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, bæjarfulltrúi
Ingibjörg Isaksen, forstöðumaður
Siguróli Magni Sigurðsson, nemi
Elvar Smári Sævarsson, kennari
Halldóra Hauksdóttir, hdl.
Tryggvi Már Ingvarsson, deildarstjóri
Guðlaug Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri
Húni Hallsson, söluráðgjafi
Sigríður Bergvinsdóttir, hársnyrtir
Óskar Ingi Sigurðsson, framhaldsskólakennari
Ragnhildur Hjaltadóttir, umboðsmaður
Jóhannes Gunnar Bjarnason, kennari
Regína Helgadóttir, bókari
Erlingur Kristjánsson, forstöðumaður
Petra Ósk Sigurðardóttir, leikskólakennari
Axel Valgeirsson, meindýraeyðir
Viðar Valdimarsson, verkamaður og nemi
Guðný Rut Gunnlaugsdóttir, leikskólakennari
Klemenz Jónsson, dúkalagningameistari
Mínerva Björg Sverrisdóttir, leiðbeinandi
Jakob Björnsson, framkvæmdastjóri
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi
Á listanum eru 10 konur og 12 karlar. Framsóknarmenn fengu einn bæjarfulltrúa kjörinn í sveitarstjórnarkosningunum 2010, Guðmund Baldvin Guðmundsson.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



