Framboðslisti Framsóknar í Hafnarfirði samþykktur
Á fundi Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Hafnarfirði í kvöld voru valdir frambjóðendur í sex efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Hafnarfirði fyrir sveitastjórnarkosningarnar sem fara fram 31. maí nk.
Sex efstu sætin skipa:
Ágúst Bjarni Garðarsson, stjórnmálafræðingur, 27 ára
Jenný Jóakimsdóttir, viðskiptafræðingur, 45 ára
Sigurjón Norberg Kærnested, vélaverkfræðingur, 29 ára
Kristín Elísabet Gunnarsdóttir, fjölmiðlafræðingur, 28 ára
Njóla Elisdóttir, hjúkrunarfræðingur, 55 ára
Valdimar Sigurjónsson, viðskiptalögfræðingur, 41 árs
Framsóknarflokkurinn stefnir að því að fá tvo menn í bæjarstjórn í vor og vill taka þátt í því samvinnuverkefni að gera bæjarfélagið að betra samfélagi og leggur þar áherslu á aukna þjónustu við bæjarbúa.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



