Framboðslisti Framsóknar í Reykjanesbæ samþykktur

Framboðslisti Framsóknar í Reykjanesbæ var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi í gær. Prófkjör var haldið 2.febrúar um efstu fjögur sætin og leiðir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir verkefnastjóri listann. Í öðru sæti er Róbert Jóhann Guðmundsson málarameistari, í þriðja sætir er Díana Hilmarsdóttir forstöðumaður Bjargarinnar og í fjórða sæti er Birgir Már Bragason framkvæmdastjóri Keflavíkur.


Það er mikil breidd í aldri, þekkingu og reynslu á lista Framsóknar og til okkar kom mikið af nýju og öflugu fólki, ekki síst ungt fólk, sem vill hafa áhrif í samfélaginu. Nú tekur við opið málefnastarf með íbúum. Það er mikill kraftur í Framsókn og við hlökkum til að heyra hvaða áherslur íbúar vilja sjá á næstu árum. Raddir íbúa munu móta okkar stefnu.


Markmiðið er að byggja áfram á þeim trausta grunni sem þegar hefur verið lagður með samvinnu, stöðugleika og skýrri framtíðarsýn að leiðarljósi.


Listi Framsóknar í Reykjanesbæ er eftirfarandi:


1 Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri

2 Róbert Jóhann Guðmundsson, málarameistari

3 Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar

4 Birgir Már Bragasson, framkvæmdastjóri

5 Halla Karen Guðjónsdóttir, sérfræðingur

6 Sighvatur Jónsson, tölvunarfræðingur og fjölmiðlamaður

7 Gunnar Jón Ólafsson, verkefnastjóri eldvarnareftirlits hjá BS

8 Eva Stefánsdóttir, deildarstjóri hjá Veitum

9 Þórarinn Darri Ólafsson, háskólanemi og leiðbeinandi

10 Hekla Sif Ingvadóttir, framhaldsskólanemi

11 Sigurður Guðjónsson, framkvæmdastjóri og bílasali

12 Àsta María Guðmundsdóttir, forstöðumaður

13 Hrafnkell Freyr Ágústsson, málari

14 Birna Ósk Óskarsdóttir, aðstoðarskólastjóri Stapaskóla

15 Karítas Lára Rafnkelsdóttir, sálfræðingur hjá HSS

16 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstýra fjölskyldusviðs

17 Hreinn Ágúst Kristinsson, deildarstjóri

18 Steinunn Valsdóttir, markaðsfræðingur

19 Yasmin Petra Younesdóttir, framhaldsskólanemi

20 Bjarney Rut Jensdóttir, lögfræðingur

21 Kristinn Þór Jakobsson fyrrv. bæjarfulltrúi

22 Jóhann Friðrik Friðriksson, varaþingmaður