Framboðslisti Framsóknar og frjálsra á Akranesi

Framboðslisti Framsóknar og frjálsra á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var kynntur og samþykktur einróma á félagsfundi Framsóknarfélags Akraness í kvöld.
Á listanum er breiður hópur fólks með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og samfélagi bæjarins. Þar má finna fólk úr stjórnsýslu, heilbrigðisþjónustu, skólasamfélaginu, atvinnulífinu og félagsstarfi, sem sameinast um vilja til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins á Akranesi og standa vörð um áframhaldandi uppbyggingu og þróun.
Áberandi er einnig sú sterka reynsla sem listinn byggir á. Af sex efstu sætum listans eru fjórir einstaklingar sem sátu í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili. Sú samvinna hefur reynst öflug á undanförnum árum og endurspeglar þann vilja að halda áfram að vinna saman að málefnum bæjarins af ábyrgð og festu.
Framsókn og frjálsir leggja áherslu á áframhaldandi innviðauppbyggingu, ábyrga fjármálastjórnun og öfluga þjónustu við íbúa. Framundan eru stór og mikilvæg verkefni og endurspeglar listinn þann kraft, vilja, þekkingu og fjölbreytni sem þarf til að takast á við þau verkefni
Listann skipa:
1. Ragnar Baldvin Sæmundsson, bæjarfulltrúi
2. Liv Åse Skarstad, bæjarfulltrúi
3. Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
4. Karl Jóhann Haagensen, sérfræðingur
5. Aníta Eir Einarsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu
6. Elín Theódóra Reynisdóttir, félagsráðgjafi
7. Björgvin Viktor Færseth, fulltrúi hjá kærunefnd útlendingamála
8. Erla Edvardsdóttir, forstöðumaður
9. Magni Grétarsson, byggingartæknifræðingur
10. Erla Björg Kristjánsdóttir, stjórnandi í velferðarþjónustu
11. Freyr Líndal Sævarsson, framkvæmdastjóri
12. Adriana Monika Malczyk, starfsmaður Norðuráls
13. Áslaug Guðmundsdóttir, kennari
14. Jóhannes Geir Guðnason, rekstrarstjóri
15. Íris Petra Jónsdóttir, háskólanemi
16. Þröstur Karlsson, vélstjóri
17. Elsa Lára Arnardóttir, skólastjóri
18. Hlöðver Sigurðsson, fyrrum útgerðarmaður


