Framboðsmál í Borgarbyggð

Framsóknarfélag Borgarbyggðar tók ákvörðun um leiðtogaprófkjör á fundi sínum 12. janúar 2026 í Borgarnesi.

Ákveðið var að leiðtogaprófkjör skyldi haldið 21. mars. Fyrir leiðtogaprófkjörið er notast við viðmiðunarreglur Framsóknar um lokað prófkjör.

Uppstillingarnefnd mun leggja fram tillögu að lista í heild sinni á félagsfundi 28. mars. 

Tekið er á móti framboðum og tilnefningum á netfanginu xb.borgarbyggd@gmail.com.

Framboðs- og tilnefningafrestur er til kl 23:59 6. mars 2026.

Uppstillingarnefnd Framsóknarfélags Borgarbyggðar