Framsókn á ferðinni í kjördæmaviku

Í kjölfarið af vel heppnuðu flokksþingi þá verður ný forysta Framsóknar ásamt þingmönnum flokksins á ferð um landið þessa vikuna og munu sækja heim bæði einstaklinga og fyrirtæki um land allt. 

Að þessu sinni hefjast leikar í Norðvesturkjördæmi þar sem staldrað verður við á Akranesi, farið í Borgarbyggð og Húnaþing vestra. Daginn eftir liggur leiðin til Húnabyggðar og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Á miðvikudegi verður farið í Norðausturkjördæmi um Fljótin, yfir  Fjallabyggð, síðan til Akureyrar og Norðurþings. Fimmtudagurinn verður tileinkaður heimsóknum í Múlaþing og Fjarðabyggð og endað Höfn. Á föstudag er það Suðurkjördæmi og heimsækjum við sveitarfélagið Hornafjörð, Árborg og Hveragerði.

Starfsáætlun Alþingis gerir ráð fyrir kjördæmaviku að hausti og vori. Sú hefð hefur skapast að skipulag kjördæmaviku að vori er í höndum stjórnmálaflokkanna sjálfra en kjördæmavika að hausti fer í formlegar heimsóknir þingmanna í hverju kjördæmi til sveitarstjórna.

Framsókn leggur ríka áherslu á, í umbótastarfi sínu í íslensku samfélagi, að hlusta á raddir landsmanna ásamt því að vera í góðum tengslum við atvinnulífið vítt og breytt um landið. Þannig byggjum við okkur öllum samfélag sem við erum stolt af, tryggjum fólki góð lífskjör og treystum búsetu í landinu.