Framsókn breytti nefndarskipan til að jafna kynjahlutföll
Gerðar voru breytingar á nefndarskipunum hjá stjórnarflokkunum til þess að leiðrétta kynjahlutföll í fasta- og alþjóðanefndum Alþingis.
Allsherjar- og menntamálanefnd: Elsa Lára Arnardóttir tekur sæti í stað Willums Þórs Þórssonar.
Efnahags- og viðskiptanefnd: Willum Þór Þórsson verður 2. varaformaður í stað Páls Jóhanns Pálssonar, Líneik Anna Sævarsdóttir tekur sæti í stað Páls Jóhanns Pálssonar. Ragnheiður Ríkharðsdóttir tekur sæti í stað Brynjars Níelssonar.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd: Willum Þór Þórsson tekur sæti í stað Líneikar Önnu Sævarsdóttur.
Umhverfis- og samgöngunefnd: Brynjar Níelsson tekur sæti í stað Ragnheiðar Ríkharðsdóttur.
Velferðarnefnd: Páll Jóhann Pálsson tekur sæti í stað Elsu Láru Arnardóttur.
Íslandsdeild Evrópuráðsins: Unnur Brá Konráðsdóttir tekur sæti varamanns í stað Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.
Íslandsdeild þings ÖSE: Guðlaugur Þór Þórðarson tekur sæti varamanns í stað Unnar Brár Konráðsdóttur.
Var þetta tilkynnt við upphaf þingfundar í gær, 13. júní.


