Framsókn og Samfylking mynda nýjan meirihluta í Suðurnesjabæ
Fréttir

Framsóknarflokkur og Samfylking hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samstarfið var undirritað nú á dögunum og staðfest á bæjarstjórnarfundi þann 13.10.2026 , Samkomulagið byggir á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrga fjármálastjórn, öfluga þjónustu við íbúa, uppbyggingu innviða og áframhaldandi framfarir í sveitarfélaginu.
Samkomulag hefur jafnframt náðst um verkaskiptingu innan nýs meirihluta. Svavar Grétarsson Oddviti Samfylkingar verður formaður bæjarráðs og Anton Kristinn Guðmundsson Oddviti Framsóknarflokksins verður forseti bæjarstjórnar. Alexandra Jóhannsdóttir mun áfram gegna embætti bæjarstjóra Suðurnesjabæjar.
Nýtt upphaf í bæjarmálum
Undanfarnir dagar hafa einkennst af pólitískri óvissu í Suðurnesjabæ. Með myndun nýs meirihluta vilja flokkarnir tryggja stöðugleika í stjórn sveitarfélagsins og skapa traustan grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu. Samstarfið byggir á gagnkvæmu trausti, virðingu og þeirri sameiginlegu sýn að hagsmunir íbúa Suðurnesjabæjar skuli ávallt vera í fyrirrúmi. Flokkarnir vilja leggja áherslu á gott samstarf allra kjörinna fulltrúa óháð pólitískum skoðunum og að ágreiningur um einstök málefni megi ekki standa í vegi fyrir framgangi mikilvægra verkefna.
Ábyrg fjármálastjórn og öflug uppbygging
Í málefnasamningnum er lögð rík áhersla á ábyrgan rekstur. Unnið verður markvisst að greiningu á rekstri, aukinni skilvirkni og hagkvæmustu nýtingu fjármuna með það að markmiði að skapa svigrúm til framkvæmda og lækkunar á álögum á íbúa og fyrirtæki eftir því sem fjárhagslegar forsendur leyfa.
Uppbygging íþróttamannvirkja, skóla- og leikskólamál, bætt þjónusta við eldri borgara og áframhaldandi uppbygging atvinnulífs verða meðal mikilvægra verkefna á kjörtímabilinu.
Sérstök áhersla verður lögð á framtíðaruppbyggingu Miðjunnar, bættar samgöngur og umferðaröryggi, auk þess að vinna með ríkinu að uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ. Jafnframt verður lögð áhersla á öflugt atvinnulíf, framtíð Sandgerðishafnar, fjölbreytt framboð lóða undir íbúðir og atvinnustarfsemi og að uppbygging innviða haldist í hendur við vöxt sveitarfélagsins.
Samstarf og traust í þágu íbúa
Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar lista eru sammála um að mikilvægt sé að horfa fram á veginn og hefja nýjan kafla í bæjarmálum Suðurnesjabæjar. Með samstarfinu vilja flokkarnir efla traust á stjórnsýslu sveitarfélagsins, auka gagnsæi og tryggja að ákvarðanir séu teknar með langtímahagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.
Sameiginlegt markmið nýs meirihluta er að láta verkin tala, vinna af heilindum og tryggja að Suðurnesjabær verði áfram öflugt og eftirsóknarvert sveitarfélag til búsetu, starfa og uppbyggingar


