Það er vor í lofti og fjölskyldur í Garðabæ farnar að skipuleggja sumarið. Ferðalög, útivera og tími saman. Á sama tíma læðist aftan að okkur foreldrunum kunnuglegt vandamál: hvernig á að láta sumarið ganga upp?

Skólaslit eru 10. júní og skólasetning 24. ágúst. Þá vandast málið, því sumarfrí okkar foreldranna nær einfaldlega ekki að dekka alla frídaga barnanna. Vissulega eru sumarnámskeið í boði, en langoftast eru þau aðeins hluta úr degi. Afleiðingin er sú að foreldrar þurfa að púsla saman lausnum, skipta sumarfríinu á milli sín og reyna að brúa bilið. Ef vel gengur að virkja baklandið, ömmur og afa, vini og vandamenn tekst kannski að kreista út örfáa daga þar sem fjölskyldan er öll saman í fríi. Þetta er veruleiki sem margar fjölskyldur í Garðabæ kannast vel við.

Samhliða þessu verður til ákveðinn vítahringur á frístundaheimilunum. Starfsfólk, sem hefur ekki heilsársstarf, leitar eðlilega annað yfir sumarið. Þegar haustið kemur birtist vandinn svo í formi mönnunarvanda og biðlista á frístundaheimilunum, þar sem ekki öll börn komast að.

En það er til lausn.

Með því að bjóða upp á áframhaldandi frístundarstarf í öllum skólum út júní og aftur eftir verslunarmannahelgi væri hægt að skapa betri samfellu fyrir börnin, styðja við foreldra og um leið bæta starfsöryggi starfsfólks. Þetta snýst ekki um að keppa við sumarnámskeiðin, heldur að auka val og tryggja börnunum öruggt heimasvæði yfir daginn. Börnin gætu mætt í sitt kunnuglega frístundaumhverfi á morgnana og þaðan farið, með fylgd starfsfólks, á sumarnámskeið ef þau kjósa að sækja slík námskeið.
Sumarið á að vera tími með fjölskyldunni, ekki hausverkur sem þarf að leysa í Excel. Við þurfum lausnir sem virka í raunveruleikanum, ekki bara á blaði. Fjölskyldur í Garðabæ eiga að fá gæðastundir á sumrin, ekki stresskast. Við í Framsókn munum beita okkur fyrir því.

Anna Margrét Steingrímsdóttir
Höfundur skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum.


Greinin birtist fyrst á postar.is þann 2. maí 2026