Halla Hrund Logadóttir óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
Innviðir
Fréttir

Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði á fundi umhverfis- og samgöngunefndar í morgun eftir opnum fundi nefndarinnar með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra um stöðu samgangna til Vestmannaeyja sem og nauðsyn heildstæðrar ferjuáætlunar fyrir landið allt.
Tillaga Höllu Hrundar var samþykkt einróma.
Tilefni fundarbeiðninnar er að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa raskast verulega vegna bilunar í Herjólfi og krefjandi stöðu Landeyjahafnar. Núverandi staða annar ekki samgönguþörf til og frá eyjum. Baldur, Breiðafjarðarferjan, hefur verið kallaður til sem varaskip, sem sýnir að vandinn nær út fyrir Vestmannaeyjar og varðar ferjusamgöngur á landsvísu. Þetta ástand er ósjálfbært og skapar gríðarlega óvissu fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum í heild.
Á fundinum með ráðherra mun Halla Hrund óska eftir því að ráðherra geri grein fyrir aðgerðum næstu vikna og mánaða vegna Landeyjahafnar, viðhalds Herjólfs og varaskipakosts. Þá vill hún að rætt verði hvort tímabært sé að móta heildstæða ferjuáætlun fyrir Ísland þar sem kaup, endurnýjun, viðhald og varaskip ferja verði tímasett og fjármögnuð sem hluti af samgönguáætlun.
Vestmannaeyjar eru einstakt samfélag í þjóðhagslegu tilliti og ferjuleiðin þangað gegnir í reynd hlutverki þjóðvegar fyrir íbúa og atvinnulíf. Því telur Halla Hrund mikilvægt að skoðað verði hvort leiðin eigi að njóta sambærilegs forgangs og hluti af grunnkerfi samgangna, til dæmis með skilgreiningu sem þjóðferjuleið.
Mikilvægt sé að móta heildarsýn sem felur í sér örugga höfn, öflugan Herjólf, raunhæfan varaskipakost og langtímaáætlun um ferjusamgöngur um allt land. Samgöngur til Vestmannaeyja eru ekki sérmál Vestmannaeyja einna. Málið varðar búsetuöryggi, atvinnulíf, ferðaþjónustu, almannavarnir og jafnræði byggða.
Í ofangreindu ljósi óskaði Halla Hrund eftir því að ráðherra svari meðal annars eftirfarandi spurningum:
● Hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til á næstu vikum og mánuðum til að bæta áreiðanleika samgangna til og frá Vestmannaeyjum?
● Hvaða ráðstafanir eru fyrirhugaðar vegna Landeyjahafnar, þar á meðal varðanddýpkun, viðhald og rekstraröryggi hafnarinnar?
● Hvernig hyggst ráðherra tryggja viðhald Herjólfs og fullnægjandi varaskipakost þegar bilanir, viðhald eða veður valda röskun á áætlunarsiglingum?
● Hvaða langtímaaðgerðir eru fyrirhugaðar á þessu kjörtímabili til að tryggja öruggar og fyrirsjáanlegar samgöngur við Vestmannaeyjar?
● Hefur ráðherra samhliða í hyggju að leggja til að stjórnvöld taki þátt í fjármögnun rannsókna félagsins Eyjaganga sem stendur að rannsóknum um fýsileika gerð jarðgangna til Vestmannaeyja?
● Kemur til greina að skilgreina samgöngur til Vestmannaeyja sem þjóðveg, með hliðsjón af stærð samfélagsins og þjóðhagslegu mikilvægi atvinnulífs þar?
● Verður sett á heildstæð ferjuáætlun fyrir landið allt komið á þar sem fjárfestingar í ferjum verða tímasettar og fjármagnaðar sem hluti af samgönguáætlun?


