Hjalti Þór Vignisson leiðir lista Framsóknar og stuðningsmanna í sveitarfélaginu Hornafirði

Þann 25. febrúar 2026 var öflugur framboðslisti Framsóknar og stuðningsmanna í sveitarfélaginu Hornafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026 samþykktur.

Listann leiðir Hjalti Þór Vignisson.

Listinn er skipaður öflugum og fjölbreyttum hópi fólks með mismunandi bakgrunn, reynslu og þekkingu. Hér fer saman reynsla þeirra sem hafa starfað lengi að sveitarstjórnarmálum og kraftur nýrra frambjóðenda sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Þessi blanda tryggir bæði reynslu, kraft og nýja sýn inn í komandi kjörtímabil.

Framundan er málefnastarf þar sem frambjóðendur bjóða íbúum sveitarfélagsins að koma sínum málefnum á framfæri og taka þátt í að móta áherslur framboðsins.

Hægt er að fylgjast með starfinu á facebooksíðu þeirra: https://www.facebook.com/xbhornafjordur/