Höldum í mannauðinn okkar

Greinar

Anna Margrét heiti ég og skipa 2. sæti á lista Framsóknar í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég bý í Lundunum og er móðir tveggja drengja í Flataskóla. Ég býð mig fram af heilindum og metnaði fyrir samfélagið okkar og eitt af þeim málefnum sem ég vil leggja áherslu á er að tryggja að Garðabær sé eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér fagmenntað fólk í grunnstörf í þágu barnanna okkar.

Mannauðurinn er ein verðmætasta auðlind hvers sveitarfélags. Í Garðabæ hefur áratugalangt starf fagmenntaðs starfsfólks byggt upp sterka þjónustu og gott samfélag. Til að viðhalda þeim styrk þurfum við að huga markvisst að því að halda í fólkið okkar. Það á sérstaklega við um lykilstéttir þar sem reynsla, menntun og samfella skipta sköpum, svo sem í leikskólum, skólum og annarri velferðarþjónustu.

Þegar fagmenntað starfsfólk velur að færa sig yfir í önnur sveitarfélög vegna betri starfskjara er það ekki aðeins tap fyrir vinnustaðinn heldur samfélagið allt. Þekkingin, tengslin og stöðugleikinn sem hver starfsmaður byggir upp með tímanum eru ómetanleg. Það tekur langan tíma að endurbyggja slíkt þegar fólk fer, og kostnaðurinn – bæði fjárhagslegur og félagslegur – getur verið umtalsverður.

Nágrannasveitarfélög hafa gripið til aðgerða til að efla starfsumhverfi sitt, til dæmis með samkeppnishæfum launum og sveigjanlegri vinnutíma. Slíkar lausnir eru ekki eingöngu kostnaður heldur fjárfesting í gæðum þjónustunnar og vellíðan starfsfólks. Ef við viljum halda í hæft fólk verðum við að tryggja að Garðabær sé eftirsóknarverður vinnustaður sem stendur jafnfætis öðrum.

Það er mikilvægt að við horfum til framtíðar og spyrjum okkur: Hvernig tryggjum við að fagmenntað starfsfólk sjái sér hag í að starfa áfram í Garðabæ? Verum vakandi og ræðum leiðir til að halda í fólkið okkar. Með því að hlusta á raddir starfsfólks, skoða raunhæfar umbætur og sýna vilja til að bregðast við getum við styrkt stoðir samfélagsins. Að halda í mannauðinn er ekki valkostur – það er forsenda þess að Garðabær haldi áfram að vera öflugt og aðlaðandi samfélag, ekki síst fyrir það góða starfsfólk sem leggur sig fram á hverjum degi við að hlúa að okkar dýrmætustu auðlind – börnunum okkar.

Höfundur skipar 2. Sæti á lista Framsóknar í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Anna Margrét Steingrímsdóttir

Greinin birtist fyrst á postar.is 9. apríl 2026