Ingibjörg vill efla rannsóknir til að styrkja sjálfsvígsforvarnir

Fréttir

Ingibjörg Isaksen er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um að ríkisstjórnin styðji rannsóknarverkefni Lífsbrúar, miðstöðvar sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis, um orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana. Með tillögunni er leitast við að afla áreiðanlegra gagna sem nýtast til að greina áhættuhópa og móta markvissari forvarnir.

Alls standa 16 þingmenn að tillögunni. Hún hefur áður verið lögð fram á Alþingi og er nú endurflutt óbreytt frá síðasta löggjafarþingi. Í greinargerð er lögð áhersla á að betri þekking á samspili heilsufarslegra, félagslegra og lýðfræðilegra þátta geti hjálpað samfélaginu að styðja fyrr við fólk í viðkvæmri stöðu.

Betri gögn til að styðja fyrr

Starfshópur á vegum Lífsbrúar hefur unnið að rannsókn á áhættuþáttum sjálfsvíga og andláta vegna óhappaeitrana á Íslandi árin 2000–2022. Rannsóknin nær meðal annars til heilsufarssögu allt að tíu ár fyrir andlát, samskipta við heilbrigðisþjónustu, sjúkdómsgreininga, meðferðar og félagslegra aðstæðna.

Í tillögunni er bent á að skortur sé á heildstæðum gögnum um aðdraganda þessara dauðsfalla. Ekki sé nóg að skrá dánarorsök heldur þurfi einnig að öðlast betri skilning á því hvernig ólíkir áhættuþættir tengjast yfir lengri tíma. Slík þekking geti nýst við að greina hvar bæta þurfi stuðning og þjónustu.

Tryggja þarf sérhæfðan stuðning við rannsóknina

Lagt er til að ríkisstjórnin styðji nauðsynlega gagnaöflun og uppsetningu gagna svo rannsóknin geti skilað niðurstöðum sem nýtast í forvarnastarfi. Gögnin koma úr ólíkum gagnagrunnum og þarf að samhæfa þau og yfirfara áður en tölfræðileg úrvinnsla hefst.

Samkvæmt greinargerð er áætlað að uppsetning heilsufarslegra og lýðfræðilegra gagna geti tekið allt að tólf mánuði. Gert er ráð fyrir um einnar milljónar króna launakostnaði á mánuði vegna sérhæfðs starfskrafts.

Niðurstöður verði grunnur að aðgerðum

Verði tillagan samþykkt er gert ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra skýrslu með tölfræði og tillögum að fyrirbyggjandi aðgerðum. Jafnframt verði tryggt að hægt sé að skoða áhættuþætti reglulega og meta árangur aðgerða. Í kjölfarið verði tekin ákvörðun um hvort koma eigi á fót sambærilegum starfshópi eða rannsóknarnefnd innan stjórnsýslunnar.

Flutningsmenn leggja áherslu á að rannsóknin styðji við það mikilvæga starf sem þegar er unnið hjá heilbrigðisstofnunum og félagasamtökum. Markmiðið sé að styrkja öryggisnet samfélagsins, efla forvarnir og bæta stuðning við einstaklinga í áhættuhópum og aðstandendur þeirra.

Lesa má þingsályktunartillöguna og greinargerðina á vef Alþingis.

Þarft þú eða einhver nákominn stuðning? Hjálparsími Rauða krossins er 1717 og netspjall er á 1717.is.

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Málefnin

Starfið

Framsókn