Jónína Brynjólfsdóttir leiðir lista Framsóknar í Múlaþingi

Framboðslisti Framsóknar í Múlaþingi var samþykktur samhljóða á félagsfundi Framsóknarfélags Múlaþings fyrr í dag.
Jónína Brynjólfsdóttir, safnstjóri og forseti sveitarstjórnar, leiðir listann áfram. Í öðru sæti er Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi, og í þriðja sæti Þórey Birna Jónsdóttir, sauðfjárbóndi. Þar á eftir koma Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi, og Guðmundur Bj. Hafþórsson, eldvarnaeftirlitsmaður. Listann skipa fjölbreyttur hópur fólks með reynslu víða að úr atvinnulífi og félagsmálum af ýmsu tagi.
„Við bjóðum fram lið sem sameinar mikla reynslu en einnig nýtt blóð og nýja sýn á málefnin. Þetta er listi fólks sem þekkir sveitarfélagið, lifir og starfar í samfélaginu og vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp sterkt og samheldið Múlaþing,“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti listans.
Framsókn leggur áherslu á samvinnu og trausta og ábyrga stjórn sveitarfélagsins. Einnig kröftuga og málefnalega hagsmunagæslu fyrir Múlaþing gagnvart ríkisvaldinu. Sérstök áhersla er lögð á málefni barna og ungmenna, stuðning við fjölskyldur, sterkt íþrótta- og menningarlíf og að tryggja að rödd allra byggðakjarna heyrist við ákvarðanatöku.
Framsókn í Múlaþingi hvetur íbúa til að kynna sér áherslur framboðsins á næstu vikum. „Við viljum að sem flestir íbúar láti sig málefni samfélagsins varða, taki virkan þátt í málefnalegri umræðu fyrir komandi kosningar og umfram allt annað að fólk mæti á kjörstað til að hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins næstu fjögur árin,“ segir Jónína.
Listann skipa:
Nafn Starfsheiti
Jónína Brynjólfsdóttir - Safnstjóri og forseti sveitarstjórnar
Eiður Ragnarsson - Ferðaþjónustubóndi
Þórey Birna Jónsdóttir - Sauðfjárbóndi
Björg Eyþórsdóttir - Hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi
Guðmundur Bj. Hafþórsson - Eldvarnareftilitsmaður
Brynjar Pálmi Ásgeirsson - Menntaskólanemi
Eygló Björg Jóhannsdóttir - Viðskiptalögfræðingur og formaður Framsóknarfélags Múlaþings
Guðgeir Einarsson - Lögreglumaður
Erla Gunnlaugsdóttir - Starfsmaður svæðisstöðva íþróttahéraða
Kári Snær Valtingojer - Rafiðnfræðingur
Lilja Sigurðardóttir - Hótelstjóri, skógarbóndi og smáframleiðandi
Þorgeir Arason - Sóknarprestur
Íris Randversdóttir - Eldri frú
Jóhann Guttormur Gunnarsson - Smábóndi
Jelena Marinković - Ensku kennari og snyrtifræðingur
Þorsteinn Kristjánsson - Eldri borgari og fv. Bóndi
Einar Tómas Björnsson - Leiðtogi hjá Alcoa
Aðalheiður Björt Unnarsdóttir - Ritari og búfræðingur
Alda Ósk Harðardóttir - Snyrtifræðimeistari
Vilhjálmur Jónsson - Bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi
Vigdís Sveinbjörnsdóttir - Eldri borgari, fv. kennari og bóndi
Þorvaldur Hjarðar - Skógarbóndi


