
Ása Björg Einarsdóttir skipar 9. sætið á listanum okkar í vor. Það er kannski til marks um hvað Grindavík er öflugur íþróttabær að nokkrar öflugar knattspyrnukonur, núverandi og fyrrverandi, skipa sér í ófá sæti á listanum.
Eins og fleiri ungir frambjóðendur þá valdi Ása Love Island sem sinn uppáhalds þátt, en í viðtali við Fótbolta.net árið 2023 var það Bold and the Beautiful sem átti hug hennar allan. Við leggjum engan dóm á hvor þátturinn er betra val!
Nafn: Ása Björg Einarsdóttir
Aldur: 22
Starf: Stuðningsfulltrúi í grunnskóla
Fjölskylduhagir: Foreldrar mínir eru Einar Guðjónsson og Ástrún Jónasdóttir svo á ég eina systur, Dröfn Einarsdóttir
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Ég myndi vilja hafa einn góðan fótboltaleik á laugardegi hjá meistaraflokk kvenna heima í Grindavík eftir hann væri gott partý í gjánni, allir mæta og hafa geðveikt gaman og svo jafnvel enda þetta á góðu eftirpartýi í einhverju heimahúsi!
Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Mikið líf og fjör. Skólahald og íþróttastarf komið á fullt!
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Villi Árna
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Love island
Uppáhalds hljómsveit: Coldplay
Uppáhalds staður í Grindavík: Stakkavíkurvöllur


