Kynning á frambjóðanda: Bergur Hinriksson

Fólkið

Í 12. sætinu er körfuboltakempan Bergur Hinriksson. Beggi var svo óheppinn að missa af fyrsta meistaratitli Grindavíkur í körfubolta þar sem hann var skiptinemi í Kólumbíu þann vetur en hann á samt alvöru monrétt þegar kemur að Íslandsmeistaratitlum því hann var í liðinu sem lyfti fyrsta Íslandsmeistaratitli Grindavíkur, í 6. flokki árið 1985!

Nafn: Bergur Hinriksson
Aldur: 53 ára
Starf: Rafvirki og sölumaður í rafbúnaðardeild Smith & Norland
Fjölskylduhagir: Giftur Lóu Kristín Ólafsdóttur og á tvo syni. Hinrik Hrafn og Ara Berg

Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Setja rafmagnsmál í forgang. Leggja áherslu á samvinnu fyrirtækja í bænum, þar með talin HS Orku, Bláa lónið og HS Veitur enda eru þau eru í okkar landi.

Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Bæ með fjölbreytta atvinnu, mikið íþrótta- og menningarstarf og ennþá meiri þekkingu á aðstæðum okkar og möguleikum.

Topp fimm:

Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Kristrún Frostadóttir
Uppáhalds lið í enska: Man Utd. Sá þá vinna Meistaradeildina á Nou Camp 1999 (Ég veit, það er langt síðan). Eitt það minnistæðasta úr mínu lífi.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Sopranos og Twin Peaks
Uppáhalds hljómsveit: Þær eru svo margar en RIP frá Grindavík er sennilega best.
Uppáhalds staður í Grindavík: Ísólfsskáli, Einsidalur og Herdísarvík á Hópsnesinu