
Nafn: Björg Eyþórsdóttir
Aldur: 37 ára
Starf: Hjúkrunarfræðingur/framhaldsskólakennari
Fjölskylduhagir: Fjögur börn, einn kall og einn köttur
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Múlaþingi í einn dag, hvað myndir þú gera?
Með allan peninginn í vasanum líka? Gera óaðfinnanlega íþróttaaðstöðu þar sem allir aldurshópar geta notið sín á sínum forsendum og aðlaga samfélagið betur að þörfum barna.
Hvar sérð þú Múlaþing eftir fjögur ár?
Framsækið barnvænt vaxandi samfélag
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi:
Jónína Brynjólfsdóttir
Uppáhalds lið í ensku:
Sko, ég hef lágmarksskoðanir þar en mér yrði sagt upp sem móður ef ég segði eitthvað annað en Liverpool.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur:
Gísli Marteinn alla daga alltaf! 🫶 (já ég er 100 ára)
Uppáhalds hljómsveit / tónlistarmaður:
Una Torfa og Herra Hnetusmjör (já ég er augljóslega líka 15 ára)
Uppáhalds staður í Múlaþingi:
Húsið mitt og við Lagarfljótið 🤍


