
Nafn: Eiður Ragnarsson
Aldur: 54 ára
Starf: Ferðaþjónustubóndi, bílstjóri og sitthvað fleira.
Fjölskylduhagir: Giftur Steinunni Þórarinsdóttur, eigum saman 3 börn og 6 barnabörn
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Múlaþingi í einn dag, hvað myndir þú gera?
Þegar stórt er spurt.. hef ég ótakmörkuð fjárráð líka... ? Hlúa að ungmenna -og íþróttastarfi, bæta samgöngur og auka samvinnu á sem flestum sviðum mannlífsins.
Hvar sérð þú Múlaþing eftir fjögur ár?
Sterkt, samheldið sveitarfélag, þar sem sérkenni hvers byggðarkjarna fá að njóta sín.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi:
Við eigum svo marga glæsilega fulltrúa að það er ekki hægt að gera upp á milli þeirra.
Uppáhalds lið í enska:
Eiginlega ekkert, fylgist lítið með enska.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur:
Spennuþættir ýmis konar, Breaking Bad er sennilega með þeim betri.
Uppáhalds hljómsveit / tónlistarmaður:
Hlusta á allskonar, en Jónas Sig er einn af mínum uppáhalds
Uppáhalds staður í Múlaþingi:
Hamarsdalurinn, hann er bestur.


