Kynning á frambjóðanda: Finnur Smári Torfason

Ég heiti Finnur Smári Torfason og skipa 6. sæti á lista Framsóknar og stuðningsmanna.
Ég er rafmagns- og tölvuverkfræðingur að detta í fertugt síðar á þessu ári. Ég er giftur Steinunni Hödd Harðardóttur, aðstoðarskólastjóra í Grunnskóla Hornafjarðar. Saman eigum við Hörð Þór, 15 ára, og Ídu Lúcíu, 10 ára, og hundinn Dana.

Ég er fæddur og uppalinn hér á Höfn og hér hefur mér alltaf þótt best að búa. Eftir útskrift úr FAS fluttumst við Steinunn til Reykjavíkur til þess að stunda frekara nám, en ég útskrifaðist með B.Sc. gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2009. Ári síðar fluttum við til Kaupmannahafnar þar sem ég stundaði nám í DTU í rafmagnsverkfræði með áherslu á sjálfvirkni og vélmenni. Ég útskrifaðist þaðan árið 2012, eftir að hafa skrifað mastersritgerð í samstarfi við Lego, en verkefnið snérist um að koma ákveðinni tækni inn í lítinn lego kubb. Það er gaman að segja frá því að núna í mars, 14 árum síðar, kom á markað kubbur sem byggir að hluta til á minni vinnu.
Fljótlega eftir að við fluttum heim fór ég í framboð fyrir Framsókn og stuðningsmenn. Fyrsta kjörtímabilið mitt var ég formaður umhverfisnefndar, og síðar varaformaður umhverfis- og skipulagsnefndar. Á síðasta kjörtímabili var ég varamaður í sömu nefnd. Umhverfis- og skipulagsmál eru mér hugleikin. Ég tel að Sveitarfélagið Hornafjörður standi framarlega í mörgu er varðar umhverfis og skipulagsmál, en betur má ef duga skal. Við stöndum frammi fyrir mörgum áskorunum á næstu árum og það er nauðsynlegt að hafa skýra og sterka stefnu í þeim málum.
Eftir að ég flutti heim gekk ég til liðs við Björgunarfélag Hornafjarðar, og árið 2020 varð ég formaður félagsins, og sinni því hlutverki ennþann dag í dag. Starf björgunarfélaga er mikilvægt, ekki síst á svæðum eins og okkar þar sem félagið sinnir margskonar verkefnum á viðfeðmu svæði.

Áhugamálin mín eru fyrst og fremst útivist og veiði, en einnig hef ég gaman að íþróttum og þá sér í lagi fótbolta og körfubolta. Ferðalög eru einnig sameiginlegt áhugamál fjölskyldumeðlima, og gildir þá einu hvort þau eru innanlands eða utan.
Það eru ekki margir sem vita við hvað ég starfa svona dagsdaglega. Ég vill því meina að ég sé Chandler Bing okkar Hornfirðinga, en fyrir þá sem ekki vita hver það er, þá er hann persóna í sjónvarpsþáttunum Friends sem enginn vissi við hvað starfaði. Fyrir áhugasama, þá starfa ég sem bakenda verkfræðingur hjá sænsku fyrirtæki sem heitir Kivra. Kivra er stafrænt pósthólf, ekki ósvipað island.is. Mitt hlutverk í fyrirtækinu er að sjá til þess að Svíar hafi greiðan aðgang að öllum sínum kvittunum á einum og sama stað.
Finnur Smári Torfason 6. sæti hjá Framsókn og stuðningsmönnum


