Kynning á frambjóðanda: Guðmundur Björnsson Hafþórsson

Fólkið

Nafn: Guðmundur Björnsson Hafþórsson

Aldur: Fæddur 1975, verð því 51 árs í haust

Starf: Eldvarnareftirlitsmaður/Slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði Múlaþings

Fjölskylduhagir: Giftur Lísu Leifsdóttur og eigum við 2 börn, Elísabet Bóel fædd 2011 og Alexander Hafþór sem er fæddur 2016


Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Múlaþingi í einn dag, hvað myndir þú gera? 

Ég myndi henda upp knatthöll til íþróttaiðkunar án þess að spyrja kóng né prest á methraða!

Hvar sérð þú Múlaþing eftir fjögur ár? 

Sveitarfélag sem verður eftirsóknarvert að búa í.

Topp fimm: 

Fótbolti, Golf, Píla, Kaffi og Collab, ekkert endilega í þessari röð samt – misjafnt eftir dögum. 


Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: 

Ívar Karl Hafliðason – by far!  


Uppáhalds lið í enska: 

Liverpool


Uppáhalds sjónvarpsþáttur: 

Ég er mikill aðdáandi af þáttum sem framleiddir eru á norðurlöndum, helst glæpatengt dót – ég er A týpa og á það til að detta í 1 – 2 þætti áður en aðrir fjölskyldumeðlimir vakna.  En ætli Fargo seríurnar séu ekki svona heilt yfir uppáhalds.


Uppáhalds hljómsveit / tónlistarmaður: 

Það var Radiohead, þangað til síðastliðinn desember.  Konan gaf mér miða á tónleika í Köben í fimmtugsgjöf en Thom Yorke ákvað svo að fá heiftarlega pest og frestaði 2 tónleikum þar – mínir tónleikar voru aðrir þeirra.  Heilt yfir hlusta ég mikið á tónlist, bæði erlenda sem innlenda flytjendur.

Uppáhalds staður í Múlaþingi: 

Sólpallurinn heima hjá mér, af því það er alltaf gott veður á Egilsstöðum!