Kynning á frambjóðanda: Gunnar Ásgeirsson

Ég skipa 5. sæti lista Framsóknar og stuðningsmanna. Ég er búsettur í Nesjum, er menntaður sjávarútvegsfræðingur og starfa hjá Skinney-Þinganesi. Ég sleit barnsskónum á Höfn og lauk stúdentsprófi frá FAS. Skólavistin á Höfn líkaði mér vel, litlir skólar þar sem sveigjanleiki var í boði og samtal við kennara almennt ágætt. Auk bóknáms lagði ég stund á píanónám og tók þátt í leiklistarhópum skólanna.

Að loknu stúdentsprófi hélt ég út fyrir landsteinana, starfaði á hrossabúi í Þýskalandi auk þess sem ég fór í bakpokaferðalag um Evrópu. Síðar starfaði ég við tamningar á Suðurlandi og í Danmörku og fór á sjóinn utan annatíma í hestamennskunni þar til ég hóf nám við sjávarútvegsfræði í Háskólanum á Akureyri haustið 2013. Þaðan útskrifaðist ég vorið 2016 en í desember 2015 fluttist ég heim og hóf störf hjá Skinney-Þinganesi þar sem ég hef starfað síðan.


Ég fluttist í Nesin haustið 2017 þar sem ég bý með hesta og kindur og er orðinn Nesjamaður inn að beini. Þar legg ég stund á mína hestamennsku en einnig hef ég reynt að verða að liði í smalamennskum með hundinn minn Bjarna mér við hlið. Þar að auki spila ég undir hjá Gleðigjöfum, kór eldri borgara á Höfn, sem er gefandi starf.


Ég er nú að sigla inn í mitt annað kjörtímabil en kjörtímabilið sem er nú að renna sitt skeið hefur verið mér mjög lærdómsríkt. Vikulegir undirbúningsfundir fyrir bæjarráðsfundi með Ásgerði, Björgvini og Gunnhildi, sem öll hafa góða reynslu af sveitarstjórnarmálunum, hafa kennt manni mikið og haldið manni upplýstum um þau mál sem hafa verið í gangi hverju sinni þannig að það hefur verið tiltölulega auðvelt að stíga upp sem varamaður þegar svo hefur borið undir. Vil ég nota tækifærið og þakka þeim fyrir samstarfið en Ásgerður og Gunnhildur hafa báðar ákveðið að segja skilið við pólitíkina – að sinni.

Auk þess að hafa verið varamaður í bæjarstjórn fékk ég það traust að sitja bæjarráðsfundi í fjarveru Ásgerðar og Björgvins. Einnig sat ég sem aðalmaður í atvinnu- og menningarmálanefnd. Það starf hefur gengið vel þó svo að maður hefði viljað sjá meiri þunga í málaflokkinn frá sitjandi meirihluta en Menningarmiðstöð Hornafjarðar býr í dag að mjög góðu starfsfólki sem hefur leitt þá vinnu sem er í gangi og eiga heiður fyrir.

Um miðjan næsta mánuð göngum við að kjörborðinu og höfum fjóra valkosti í boði. Framsókn og stuðningsmenn leggja fram lista sem er skipaður fólki sem hefur blandaða reynslu af sveitarstjórnarmálum en eiga öll það sameiginlegt að hafa reynslu af því að láta verkin tala. Það er mikilvægt að hafa fólk í brúnni sem kemur hlutunum í verk og í það erum við tilbúin. Setjum X við B á kjördag, lækkum álögur á íbúa og framkvæmum með hagsmuni íbúa sveitarfélagsins alls í forgrunni.

Gunnar Ásgeirsson 5. sæti hjá Framsókn og stuðningsmönnum í sveitarfélaginu Hornafirði