Kynning á frambjóðanda: Hanna Einarsdóttir
Fólkið

Hanna Einarsdóttir skipar 6. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Við erum ótrúlega heppin að hafa Hönnu með okkur í liði. Hún er hlý, lausnamiðuð og með einlægan áhuga á samfélaginu okkar. Með reynslu sinni, þekkingu og metnaði fyrir börnum, fjölskyldum og velferð er Hanna dýrmætur liðsmaður á okkar lista
“Ég heiti Hanna Einarsdóttir, er 36 ára og uppalin í Flóanum á bænum Urriðafossi. Ég er gift Degi Arngrímssyni og saman eigum við tvo syni. Við fluttum til Hveragerðis árið 2019 með það að markmiði að skapa fjölskyldunni okkar gott og öruggt umhverfi til framtíðar. Fljótlega eftir flutninga kom í ljós að hér var okkar heimili. Bæjarbúar tóku á móti okkur með hlýju og opnum örmum, og það skipti sköpum. Þessi sterka tilfinning fyrir samheldni og nálægðin við náttúruna gerði það að verkum að hér viljum við ala upp börnin okkar.
Ég starfa sem talmeinafræðingur hjá Hveragerðisbæ og hjá Talþjálfun Suðurlands á Selfossi. Þar fæ ég daglega innsýn í hversu miklu máli snemmtæk íhlutun skiptir og að börn alist upp í samfélagi sem mætir þeim þar sem þau eru. Þetta eru mál sem hafa mótað mína sýn og standa mér sérstaklega nærri. Samhliða þessari vinnu er ég svo lánsöm að fá að starfa við mitt helsta áhugamál en ég er söngkona í söng- og leikhópnum Tónafljóð.
Ég hef setið sem varamaður og í fræðslu- og velferðarnefnd og skólanefnd. Einnig sat ég i umhverfisnefnd um tíma. Eg hef fengið tækifæri á að fá innsýn í starfsemi bæjarins og þau mál sem snerta íbúa og er það dýrmæt reynsla. Ég vil halda áfram að leggja mitt af mörkum til að halda áfram að byggja upp sterkt og gott samfélag í Hveragerði, fyrir okkur og komandi kynslóðir.”


