
Helgi er hugbúnaðarverkfræðingur og þeir eru þekktir fyrir að hugsa í lausnum. Ef hann fengi að vera einvaldur í Grindavík í einn dag myndi hann planta fullt af trjám sem veita „gott skjól í þeim fáu tilvikum sem þess þarf“ því hann veit eins og skáldið að þegar logn er í Grindavík er lognið hvergi meira.
Nafn: Helgi Gylfason
Aldur: 39
Starf: Hugbúnaðarverkfræðingur hjá Reiknistofu Fiskmarkaða (RSF)
Fjölskylduhagir: giftur Rut Ragnarsdóttur listmálara og eigum saman þrjú börn: Ísold, Nóa og Eik
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Planta fullt af trjám sem gerir ásýnd bæjarins enn betri og veitir gott skjól í þeim fáu tilvikum sem þess þarf.
Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Skólahald og íþróttastarf komið á fullt - lífið farið að blómstra í bænum. Ný tækifæri sem sköpuðust vegna eldgossins farin að láta bera verulega á sér.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Jón Gnarr sem Indriði - algjört kameljón
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Game of Thrones
Uppáhalds hljómsveit: Leonard Cohen
Uppáhalds staður í Grindavík: Eldhúsið heima í Árnastíg með útsýni á Þorbjörn.


