
Í þriðja sætinu er bæjarfulltrúinn Inga Fanney sem kemur sjóðandi heit inn á listann eftir að hafa látið vel til sín taka í bæjarstjórn fyrir Rödd unga fólksins undanfarin ár. Við tökum að sjálfsögðu fagnandi á móti henni og hennar reynslu úr bæjarpólítíkinni sem mun án vafa nýtast okkur Grindvíkingum vel næstu fjögur ár.
Nafn: Inga Fanney Rúnarsdóttir
Aldur: 34 ára - held fast í þá tölu sem desemberbarn
Starf: Ráðgjafi í virkni- og ráðgjafarteymi hjá Reykjanesbæ og bæjarfulltrúi
Fjölskylduhagir: Í sambúð með Jóni Birni Lárussyni og á einn gullmola, hana Hafdísi Rún
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Þrátt fyrir skamman tíma væri draumurinn að leggja grunn að traustri og öruggri velferðarþjónustu, þar sem áfallamiðuð nálgun er höfð að leiðarljósi.
Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Fyrir tveimur árum stóðum við í ströngum veruleika fyrir framan lokunarpósta að biðja um leyfi að komast heim. Í dag stefnum við á leikskóla- og mögulega skólaopnun í lok sumars. Einföld spurning: eftir fjögur ár erum við komin langt í endurreisninni og hlutir sem hamla okkur í dag heyra vonandi sögunni til. Ég er bjartsýn á það. Mig langar einnig að minnast á það hvað við höfðum það gott hvað varðar þjónustu í allri mynd fyrir rýmingu, ég vil komast á þann stað aftur.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Nú skal ég sko nýta tækifærið og hæla Willum og Höllu Hrund fyrir einstakan glæsileika
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Frasier og Seinfeld en raunveruleikasjónvarp er mitt „guilty pleasure“
Uppáhalds hljómsveit: Ég fer frá allra uppáhalds Sigur Rós yfir í Dua Lipa á „notime“
Uppáhalds staður í Grindavík: Þorbjörn og smábátabryggjan


