
Nafn: Jónína Brynjólfsdóttir
Aldur: 46 ára
Starf: Safnstjóri á Tækniminjasafni Austurlands, forseti sveitarstjórnar, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, formaður heimastjórnar Seyðisfjarðar,
Fjölskylduhagir: Gift Davíð Arnari Sigurðssyni og á með honum 2 börn, son og dóttur.
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Múlaþingi í einn dag, hvað myndir þú gera?
Það er nú ansi margt sem hægt væri að gera, margt af því sem okkur langar að gera og þarf að gera kostar peninga svo að ég myndi reyna að finna peninga einhvers staðar til að setja meira fjármagn í viðhald og framkvæmdir.
Hvar sérð þú Múlaþing eftir fjögur ár?
Ég tel Múlaþing vera frábæran stað til að búa á, fjölbreytt samfélög, nálægð við náttúruna, hæglæti og almenn gleði í samfélaginu. Við erum með sveitarfélag sem hefur þá getu að haga seglum eftir vindum og aðlaga okkur að aðstæðum hverju sinni, sem er frábært og gefur okkur það færi að þróast og breytast með samfélaginu. Eftir 4 ár vonast ég til þess að við séum búin að komast í framkvæmdir víðsvegar um sveitarfélagið og að við verðum búin að leysa úr áskorunum varðandi íþrótta- og tómstundamál barna víðsvegar í sveitarfélaginu.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi:
Stefán Vagn, okkar eigin Vin Diesel
Uppáhalds lið í enska:
Hef mjög litla skoðun á því en segi Arsenal
Uppáhalds sjónvarpsþáttur:
Mjög margir, ég elska alla real crime þætti en svo líka bara skemmtiþætti eins og The Middle sem ég er að horfa á núna, í svona þriðja skipti.
Uppáhalds hljómsveit / tónlistarmaður:
Ég hef nú alltaf elskað Bó, var búin að vera í smá pásu undanfarin ár en er komin aftur á Bó- vagninn
Uppáhalds staður í Múlaþingi:
Þeir eru mjög margir og við fjölskyldan erum dugleg að fara um Austurland, en á brún Fjarðarheiðar með útsýni yfir héraðið frá Snæfelli til Héraðssands er einn af mínum allra uppáhalds stöðum.


