Kynning á frambjóðenda: Þórdís Þórsdóttir

Ég heiti Þórdís Þórsdóttir og skipa 8.sæti lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra.
Ég er 43 ára og starfa sem skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar. Ég er gift Guðjóni Björnssyni húsasmið og saman eigum við tvö börn, Garp 13 ára, Sólrúnu Huld 10 ára og hundinn Millu. Ég er fædd og uppalin í Reykjavik, gekk í Seljaskóla í Breiðholti en flutti um 12 ára aldur í Grafarvog. Foreldrar mínir eru Sólrún Guðjónsdóttir og Þór Benediktsson, ég á eina systir Brynhildi G. Þórsdóttir.

Ég lauk stúdentsprófi af félagsfræðibraut og iðnprófi í margmiðlunarhönnun frá Borgarholtsskóla, lauk svo námi B.ed í grunnskólakennarafræðum og er með framhaldsnám í sérkennslufræðum. Ég elska að lesa og hef sérstaklega gaman að ævisögum og bókum sem byggðar eru á sönnum atburðum.
Mín helstu áhugamál snúa að ferðalögum og heilsu, hvort sem það er mataræði, hreyfing eða samvera með fjölskyldunni. Ég er með mikla ferðabakteríu og hef m.a. ferðast til Ástralíu, Nýja-Sjálands og sinnt sjálfboðaliðastarfi í Costa rica. Þegar ég var yngri æfði ég dans og handbolta með ÍR. Að dansa hefur alltaf veitt mér mikla gleði og fékk ég tækifæri til þess að kenna Zumba hér á Höfn fyrir nokkrum árum.

Það eru 17 ár síðan ég flutti til Hafnar og hér hef ég valið að búa og ala upp börnin mín, það er í mínum huga ákveðin forréttindi að búa á Hornafirði, hér er mikil náttúrufegurð og almennt gott samfélag. Það skiptir mig máli hvernig samfélagið þróast og langar mig að taka þátt í því að gera Höfn að ákjósanlegum stað til að búa á. Því hef ég ákveðið að bjóða áfram krafta mína í framboði fyrir Framsókn og stuðningsmenn þeirra. Ég óska því eftir stuðningi þínum kæri kjósandi í sveitarstjórnakosningum þann 16.maí næstkomandi.
Þórdís Þórsdóttir 8. sæti hjá Framsókn og stuðningsmönnum í sveitarfélaginu Hornafirði


