
Í 1. sæti er forseti bæjarstjórnar, Ásrún Helga Kristinsdóttir. Hún hefur staðið í ströngu í því embætti síðustu ár og er tilbúin að taka slaginn aftur enda full af eldmóði.
Öflugri baráttukonu fyrir hagsmunum Grindavíkur og Grindvíkinga er erfitt að finna.
Nafn: Ásrún Helga Kristinsdóttir
Aldur: 52 ára
Starf: Forseti bæjarstjórnar. Hlakka til að geta farið að nýta menntun mína sem grunnskólakennari von bráðar.
Fjölskylduhagir: Maki minn er Reynir Ólafur Þráinsson og eigum við tvær dætur, Margréti Rut og Örnu Rún.
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Ég myndi setja öryggi og framtíð Grindvíkinga í forgang. Áhættumat og húsnæðismál eru mér efst í huga og ég myndi tryggja skýra, sanngjarna og markvissa lausn á húsnæðis- og endurkaupamálum okkar.
Ég myndi jafnframt biðja okkar Benedikt að fara með Böðvar í göngutúr um svæðið og leiða hann í allan sannleika um hættur og tækifæri Grindavíkur.
Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Sterkt og samstillt samfélag sem nýtti reynslu hamfaranna af festu og framsýni. Áhrifarík markaðssetning ýtti undir tækifæri og öflugara atvinnulíf. Grindavík er útivistar- og lýðheilsubær þar sem hlúð er að andlegri og líkamlegri heilsu allra hópa samfélagsins. Menntastarf er framúrskarandi, fjölbreytt og framsækið – samfélag þar sem þekking, vísindi og náttúra fara saman.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Mér finnst Willum Þór sjarmerandi og góður gæi
Uppáhalds lið í enska: Liverpool í blíðu og stríðu
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Big little lies
Uppáhalds hljómsveit: Valdimar
Uppáhalds staður í Grindavík: Klárlega heima, Hópsnesið og Bótin


