Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi

Framsóknarflokkurinn í Kópavogi kynnir nú framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 16. maí næstkomandi. Orri Hlöðversson, stjórnarformaður Frumherja hf. og bæjarfulltrúi verður áfram oddviti listans og annað sætið skipar Björg Baldursdóttir, skólastjóri og bæjarfulltrúi. Þriðja sætið skipar Gunnar Sær Ragnarsson, lögfræðingur og það fjórða skipar Svava H. Friðgeirsdóttir skjalastjóri. Í fimmta og sjötta sæti eru síðan Heiðdís Geirsdóttir, félagsfræðingur og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, forstöðumaður og knattspyrnuþjálfari.
Á listanum eru:
Orri V. Hlöðversson - Framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
Björg Baldursdóttir - Grunnskólastjóri og bæjarfulltrúi
Gunnar Sær Ragnarsson - Lögfræðingur
Svava H Friðgeirsdóttir - Skjalastjóri
Heiðdís Geirsdóttir - Félagsfræðingur
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir - Forstöðumaður
Bergrún Ósk Ólafsdóttir - Hönnuður
Sveinn Gíslason - Rekstrarhagfræðingur
Stefán Atli Rúnarson - Ráðgjafi
Haukur Thors Einarsson - Sálfræðingur
Atli Ársælsson - Nemi
Kristinn Dagur Gissurarson - Viðskiptafræðingur
Guðrún S. Viggósdóttir - Fv. hjúkrunardeildarstjóri
Atli Ómarsson - Viðskiptafræðingur
Þórunn K. Matthíasdóttir - Kennslufræðingur og eldri borgari
Baldur Þór Baldvinsson - Eldri borgari og húsasmíðameistari
Díana Íva Gunnarsdóttir - Stílisti
Einar Gunnar Bollason - Íþróttakennari
Margrét Sigmundsdóttir - Lífsþjálfi
Sigrún Hulda Jónsdóttir - Deildarstjóri
Willum Þór Þórsson - Forseti ÍSÍ, fv. ráðherra og þingmaður
Birkir Jón Jónsson - Fv. bæjarfulltrúi og fyrrv. alþingismaður
Listinn er vel skipaður að mati Orra Hlöðverssonar, oddvita listans. „Hér er saman kominn þéttur og góður hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og mikla reynslu. Nú tekur við vinna við að koma á framfæri við kjósendur okkar góðu verkum undanfarin ár“ segir Orri en Framsókn hefur átt aðild að meirihluta bæjarstjórnar á því kjörtímabili sem nú er að líða. Þar er að nógu að taka að sögn Orra. „Vil ég þar sérstaklega nefna þétt og gott aðhald á rekstri bæjarins, uppbyggingu íþróttamannvirkja, einbeitta stefnu í skólamálum, öfluga velferðarþjónustu, umbætur og kraft i menningarmálum að ógleymdu Kópavogsmódelinu í leikskólamálum“.
Framsókn í Kópavogi fékk tvo fulltrúa af 11 í bæjarstjórn í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2022


