Sigurbjörn Rafn Úlfarsson leiðir lista Framsóknar og óháða í Strandabyggð

Framsókn í Strandabyggð hefur samþykkt fyrstu sætin á framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Framsókn hefur ekki verið með framboðslista síðastliðin kjörtímabil og er þetta því nýtt og spennandi framboð. Framboðið mun vera Framsókn og óháðir.
Framboðið vinnur nú áfram að því að fullmóta listann og verður tilkynnt á næstu dögum hverjir skipa næstu fimm sæti hans.
Markmið framboðs Framsóknar og óháðra er að vinna að uppbyggingu samfélagsins í Strandabyggð með áherslu á samvinnu, sátt og raunhæfar lausnir í helstu málum sveitarfélagsins.
Framboðið leggur sérstaka áherslu á að byggja upp barn- og fjölskylduvænt samfélag þar sem samvinna menningar, lista, íþrótta og atvinnulífs er í forgangi og stuðlar að fjölbreyttu og lifandi samfélagi fyrir alla íbúa. Okkar leiðarljós er samvinna, vöxtur, velferð og manngildi ofar auðgildi.
Á sama tíma er ljóst að fjárhagsstaða sveitarfélagsins er krefjandi og kallar á ábyrg vinnubrögð og skýrt aðhald í rekstri. Einnig verður að horfa til vaxtar og raungera þau mörgu tækifæri sem felast í samfélaginu.
Framundan eru erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir sem þarf að taka með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi og í samvinnu við íbúa sveitarfélagsins. Þátttaka er því sérstaklega mikilvæg svo allar raddir heyrist, öll sjónarmið komi fram og við getum talað saman einni rödd. Snúum bökum saman og látum það gerast.
Framboðið hvetur alla áhugasama íbúa til að taka þátt í starfinu og styðja við framboðið. Unnið er að því að tryggja jafnt kynjahlutfall á listanum. Þar sem enn vantar einn til tvo karlmenn á listann til að ná því markmiði eru áhugasamir einstaklingar sérstaklega hvattir til að hafa samband. Annars eru öll velkomin hvar sem hver er.
Nánari upplýsingar um listann og stefnumál framboðsins verða kynntar á næstunni.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson leiðir lista Framsóknar og óháðra í Strandabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sigurbjörn er framkvæmdastjóri Pakkhússins Vík ehf á Hólmavík. Hann er menntaður vélvirkjameistari, með BA próf í heimspeki frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst með vinnu. Sigurbjörn er 59 ára og á uppkominn son og kvæntur Halldóru Jónsdóttur skurðhjúkrunarfræðingi. Sigurbjörn er uppalinn á Álftanesi en á einnig rætur að rekja í Bitrufjörð og hefur búið á Hólmavík frá 2018. Hann var framkvæmdastjóri rækjuvinnslu Hólmadrangs frá 2018 til 2024. Sigurbjörn sat í sveitarstjórn á Álftanesi frá 2002 til 2009 og í stjórn Sorpu 2008 til 2009. Sigurbjörn hefur áhuga á stjórnmálum, fjallgöngum og útivist en hann hefur meðal annars gengið á Kilimanjaro í Tansaníu og Cotopaxi í Ekvador.


