Eitt af aðal markmiðum Framsóknar og óháðra á Skagaströnd er að sveitarfélagið verði heilsueflandi samfélag. Fyrir því eru fjölmargar góðar og jákvæðar ástæður sem við viljum skoða, skilgreina og leita leiða til lausna með samstilltu átaki sem byggir á fræðslu og nýrri nálgun í stefnumótun og þjónustu.

Við viljum nýta verkfæri landlæknisembættisins til „heilsueflandi samfélags“ til að betrumbæta það góða sem nú þegar er til staðar og bæta það sem þarf svo samfélagið á Skagaströnd hafi þau tól og tæki sem það þarf til að byggja upp heilsueflandi framtíð.

Við eigum öll mismunandi mikinn eða lítinn veraldlegan auð en þegar upp er staðið þá er það okkar eigin heilsa sem eru mestu verðmætin.

Markvisst lýðheilsustarf, sem sem byggir á bestu þekkingu á hverjum tíma hefur fjölþætt gildi fyrir ríki og sveitarfélög en ekki síst einstaklinga í samfélaginu. Ef vel tekst til við innleiðingu heilsueflandi samfélags má vænta að andleg, líkamleg og félagsleg heilsa og vellíðan íbúa Skagastrandar verði betri en annars. Jöfnuður verði meiri sem og öryggi og lífsgæði almennt. Við leggjum áherslu á að við alla stefnumótun og útfærslu á þjónustu verði valdar hagkvæmar leiðir til að viðhalda og bæta heilsu og færni fólks á öllum æviskeiðum. Heilsuefling miði að því að hafa áhrif á lífsstíl fólks og gera því kleift að lifa heilsusamlegu lífi við heilnæmar aðstæður.

Markmið okkar er því að hvetja íbúa á öllum ævistigum til þess að huga að eigin heilsu, hvort sem er um líkamlega eða andlega heilsu að ræða svo að bæði hver og einn og samfélagið okkar í heild blómstri til framtíðar. Því jú… það erum við íbúarnir sem byggjum upp heilbrigt samfélag saman með góðri forystu.

Að okkar mati er núna tími til að staldra við og hugsa fram á vegin, því samfélagið okkar stendur á vissum krossgötum. Íbúafjöldi Skagastrandar er í sögulegu lágmarki eða um 450 íbúar.


Við höfum því velt upp nokkrum áhersluatriðum til að byrja á:

Hvernig getum við bætt uppvaxtarárin á Skagaströnd svo ungmennin okkar komi aftur heim?

Hvernig eflum við unga fólkið svo upplifun þeirra af því að búa sér til framtíð á Skagaströnd verði góð?

Hvernig styðjum við foreldra á Skagaströnd til framtíðar svo að það sé áfram gott að ala upp börn á Skagaströnd? Við viljum halda fjölskyldu fólkinu okkar á svæðinu.

Hvernig sköpum við ný atvinnutækifæri svo að það sé vinna til staðar fyrir þá sem vilja flytja í okkar fallega bæjarfélag?

Hvernig hvetjum við til atvinnu og félagslegra þáttöku svo allir íbúar séu virkir þátttakendur í samfélaginu?

Hvernig gerum við það gott að eldast á Skagaströnd svo eldri borgarar finni fyrir virðingu, öryggi og að lífsgæði þeirra séu góð?

Við höfum að sjálfsögðu ekki svör við öllum þessum spurningum enda er hvorki eitt eða einfalt svar til við neinni þeirra, en við vörpum þeim fram til að það sé skýrt að við ætlum okkur að leita svara. Við viljum finna lausnir af því við viljum byggja saman samfélag sem er inngildandi, þar sem allir eiga sér stað og finna að þeir skipta máli.

Að okkar mati skiptir ekki máli í hvaða horn þjónustu eða samfélagsuppbyggingar er litið, leiðin að betri lausnum liggur þráðbeint til heilsueflandi samfélags.

Leiðirnar að heilsueflandi samfélagi eru margar en dæmi um það sem getur haft áhrif á svokallaða heilsuhegðun fólks eru gönguleiðir, aðgengi að byggingum og þjónustu, opnunartími íþróttamannvirkja, hönnun og almennt skipulag bæjarfélaga, aðgengi að frístundum og aðgengi að hollum matvælum.

Því miður er það staðreynd að allt of margir, ungir sem aldnir, þjást af kvíða og depurð. Sem hefur áhrif á marga þætti innan samfélags. Þar á meðal félagslega þátttöku. Mikilvægt er að finna fleiri lausnir til að bæta og breyta líðan fólks, með fjölbreyttari úrræðum.

Miklu máli skiptir að fólk fái notið hæfileika sinna hvar sem það er statt í lífinu með auknum skilningi á mismunandi þarfir og að nýjum hugmyndum sé tekið með opnum hug og þær fái rými til þess að vaxa og dafna.

Það er því okkar einlæga sýn að með heilsueflandi samfélagi geti Skagaströnd blómstrað enn frekar og orðið enn betri staður til að búa á til langrar framtíðar. Hugsum stærra, hugsum lengra, hugsum betur um hvort annað!


Eydís Inga Sigurjónsdóttir

Oddviti Framsóknar og óháðra á Skagaströnd