Stærsta sveitarfélag landsins án hjúkrunarheimilis
Greinar

Suðurnesjabær hefur á undanförnum árum verið í hópi þeirra sveitarfélaga landsins sem vaxið hafa hvað hraðast. Íbúar eru nú 4.332 talsins og er sveitarfélagið það 15. fjölmennasta á landinu. Samhliða þessari öru uppbyggingu hefur samfélagið eflst, nýjar fjölskyldur sest hér að og íbúasamsetningin orðið fjölbreyttari.
Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun hefur uppbygging mikilvægrar grunnþjónustu ekki að öllu leyti fylgt fjölgun íbúa. Þar blasir við sú staðreynd að í sveitarfélagi af þessari stærðargráðu er enn ekkert hjúkrunarheimili.
Það þýðir að íbúar sem þurfa á sólarhringshjúkrun og umfangsmikilli umönnun að halda geta þurft að flytja úr sveitarfélaginu þegar heilsan brestur og þjónustuþörfin eykst. Fólk sem hefur búið hér alla sína ævi, tekið þátt í atvinnulífinu, alið upp börn sín og lagt sitt af mörkum til samfélagsins stendur þá frammi fyrir því að þurfa að yfirgefa heimabyggð sína á viðkvæmu skeiði lífsins.
Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila
Ríkisstjórnin sem nú situr hefur boðað þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila vítt og breitt um landið. Það er mikilvægt og tímabært framtak enda er þörfin fyrir fjölgun hjúkrunarrýma mikil víða um land.
Við sem sitjum í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar teljum eðlilegt að við þessa uppbyggingu verði sérstaklega horft til þeirra sveitarfélaga þar sem slík þjónusta er ekki fyrir hendi. Þar hlýtur Suðurnesjabær að koma sterklega til álita.
Það er mikilvægt að stjórnvöld horfi ekki eingöngu til þess hvar fjölga þurfi hjúkrunarrýmum heldur einnig til þess hvar heilu samfélögin skortir þessa mikilvægu þjónustu.
Við verðum að tryggja að íbúar hafi raunhæft val um að eldast í sinni heimabyggð, nálægt fjölskyldu, vinum og því félagslega umhverfi sem þeir þekkja.
Suðurnesjabær sker sig úr
Þegar litið er til 20 fjölmennustu sveitarfélaga landsins kemur athyglisverð staðreynd í ljós. Suðurnesjabær, sem er 15. fjölmennasta sveitarfélag Íslands með 4.332 íbúa, er eina sveitarfélagið í þessum hópi sem ekki hefur hjúkrunarheimili.
Þessi samanburður sýnir með skýrum hætti hversu sérstök staða bæjarins er. Hér er ekki um að ræða lítið og afskekkt samfélag heldur ört vaxandi sveitarfélag með rúmlega 4.500 íbúa, öflugt atvinnulíf og mikla framtíðarmöguleika. Það er því full ástæða til að spyrja hvers vegna íbúar Suðurnesjabæjar eigi ekki að njóta sömu möguleika og íbúar annarra sambærilegra sveitarfélaga þegar kemur að þjónustu við aldraða.
Uppbygging til framtíðar
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur sýnt metnað þegar kemur að málefnum eldri borgara og er stórhuga í sinni sýn og horfir meðal annars til uppbyggingar lífsgæðakjarna þar sem áhersla verður lögð á góða grunnþjónustu, félagslega þátttöku og aukin lífsgæði.
Jafnframt hefur verið samþykkt að hefja viðræður við ríkið um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í sveitarfélaginu. Sú ákvörðun er mikilvægt skref og sýnir að vilji er hjá sveitarfélaginu til að taka þátt í lausn þessa brýna verkefnis.
Hugmyndin er að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum, meðal annars með því að tryggja hentuga lóð, en ríkið komi að fjármögnun og uppbyggingu hjúkrunarheimilisins í samræmi við þá ábyrgð sem það ber á málaflokknum.
Með markvissri samvinnu ríkis og sveitarfélags er hægt að skapa heildstæða framtíðarsýn þar sem íbúar geta notið fjölbreyttrar þjónustu eftir því sem aldur færist yfir og þarfir breytast.
Áskorun til ríkisstjórnarinnar
Ég vil því beina þeirri skýru áskorun til ríkisstjórnarinnar að staða Suðurnesjabæjar verði tekin til sérstakrar skoðunar við fyrirhugaða uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu.
Við í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar erum reiðubúin til samtals og samstarfs um þetta mikilvæga verkefni. Það sem við óskum eftir er að stjórnvöld mæti okkur og komi að borðinu, skoði aðstæður af sanngirni og taki mið af þeirri staðreynd að hér er eitt fjölmennasta sveitarfélag landsins án hjúkrunarheimilis.
Það er framtíðarsýn sem vert er að berjast fyrir, að íbúar í Suðurnesjabæ geti notið efri áranna í sínu samfélagi.

Anton Kristinn Guðmundsson
Höfundur er forseti bæjarstjórnar í Suðurnesjabæ.



