Stjórnmálaskóli SUF
Eins og það getur verið misjafnlega gaman að setjast á skólabekk, þá hefur það aldrei verið eins gaman og að setjast á skólabekk í stjórnmálaskóla SUF.
Kennararnir eru hressir, námsefnið skemmtilegt og félagsskapurinn til mikillar fyrirmyndar.
13:00 – Setning stjórnmálaskólans
13:15 – Saga og hugmyndafræði Framsóknarflokksins
Einar Gunnar Einarsson, skrifstofustjóri Framsóknarflokksins
14:30 – Kaffihlé
14:45 – Fjölmiðlar og skrif
Karl Garðarsson, þingmaður og fyrrverandi fréttastjóri
15:10 – Kynning á málefnum verkalýðsfélaga
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness
15:45 – Kaffihlé
16:00 - Ræðumennska og framkoma
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra
17:00 – Heimsókn á Alþingi
Jóhanna María Sigmundsdóttir, yngsti þingmaður landsins
Og rétt eins og á öllum góðum dögum, verður endað á partý.
Þetta er einfaldlega skemmtun sem enginn ungur Framsóknarmaður (núverandi sem tilvonandi) má láta framhjá sér fara.
Stjórnmálaskólinn verður laugardaginn 2. nóvember frá kl. 13:00-17:00 í Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu 33 í Reykjavík.
Skráningar sendis á netfögin brekkubraut5@gmail.com eða bjarkiadal@nordural.is.
Samband ungra framsóknarmanna er 75 ára á þessu ári og er mikilvægt að ungir framsóknarmenn viðhaldi pólitísk styrk sambandsins og fjölmenni í stjórnmálaskólann.



