Sunna Hlín leiðir Framsókn á Akureyri

Framsókn á Akureyri hefur samþykkt framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

F.v. Thea Rut Jónsdóttir, Guðbjörg Anna Björnsdóttir, Steinar Óli Sigfússon, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Sverre Andreas Jakobsson, Gunnar Már Gunnarsson.
Á listanum okkar blandast saman reynsla og ferskur kraftur. Þar er reynslumikið fólk en líka nýr hópur af ungu og öflugu fólki sem kemur inn með mikla orku og metnað.
Sunna Hlín Jóhannesdóttir - Bæjarfulltrúi
Gunnar Már Gunnarsson - Bæjarfulltrúi
Sverre Andreas Jakobsson - Svæðisstjóri fyrirtækja hjá Arion
Guðbjörg Anna Björnsdóttir - Skrifstofustjóri
Steinar Óli Sigfússon - Nemi í tæknifræði
Thea Rut Jónsdóttir - Skurðhjúkrunarfræðingur
Einar Hjartarson - Ráðsmaður
Bethsaida Rún Arnarson - Fiskverkakona
Ingimar Eydal - Skólastjóri Sjúkraflutningaskólans
Tanja Hlín Þorgeirsdóttir - Sölufulltrúi fasteigna
Jóhannes Gunnar Bjarnason - Íþróttakennari
Ólöf Rún Pétursdóttir - Ráðgjafi í móttöku flóttafólks
Guðmar Gísli Þrastarson - Nemi í VMA
Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir - Öryrki og söngnemandi
Bergur Ingi Óskarsson - Nemi í HÍ
Katrín Ásgrímsson - Framkvæmdastjóri
Erlingur Kristjánsson - Forstöðumaður
Ragnhildur Hjaltadóttir - Umboðsmaður
Tryggvi Már Ingvarsson - Framkvæmdastjóri hjá HMS
María Ingadóttir - Eldri borgari
Jakob Björnsson - F.v. bæjarstjóri á Akureyri
Ingibjörg Ólöf Isaksen - Þingmaður

F.v. Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir, Steinar Óli Sigfússon, Guðmar Gísli Þrastarson, Ólöf Rún Pétursdóttir.
,,Er virkilega þakklát fyrir það traust að fá að leiða aftur lista Framsóknar á Akureyri. Ég er svo heppin að hafa með mér samhentan hóp af fólki sem vinnur vel saman og ég get alltaf leitað til. Það er dýrmætt. Á listanum okkar blandast saman reynsla og ferskur kraftur. Þar er reynslumikið fólk en líka nýr hópur af ungu og öflugu fólki sem kemur inn með mikla orku og metnað. Við Gunnar höfum myndað gott teymi á yfirstandandi kjörtímabili, samstarf sem aldrei hefur borið skugga á, en nú sláum við í klárinn og hefjum skemmtilega kosningabaráttu með kröftugu fólki," segir Sunna Hlín Jóhannesdóttir.


