Þessi þungu högg
Greinar

Fjárlög eru ekki bara tölur í ríkisreikningi heldur birtast ákvarðanirnar í heimilisbókhaldinu hjá fólkinu í landinu. Í gjöldum, bótum, sköttum, vöxtum og lánum. Þess vegna skiptir mestu að spyrja: Hvað kosta fjárlögin raunverulega heimilin í landinu?
Við í Framsókn höfum nálgast þetta fjárlagafrumvarp með öðrum hætti en áður. Við höfum reiknað út áhrif helstu breytinga í fjárlagafrumvarpinu 2027 á mismunandi þjóðfélagshópa. Tökum hjón með tvö börn, 45 milljóna króna húsnæðislán og um 1,33 milljónir króna í samanlagðar mánaðarlaunatekjur fyrir skatt. Áætluð viðbótarbyrði heimilisins er um 343 þúsund krónur árið 2027. Niðurstaðan er sláandi. Þar koma saman hærri gjöld og skattviðmið, rýrnun barnabóta, afnám vaxtabóta, áhrif hækkunar bankaskatts, tafir á vaxtalækkunum og aukin verðtryggð skuld. Hver liður kann að líta hóflega út einn og sér. En heimilin borga ekki einn lið í einu. Þau borga heildarreikninginn.
Það sem vekur sérstakar áhyggjur er hvernig þessi byrði dreifist. Í okkar dæmum er krónutöluhöggið nánast það sama hjá tekjulægra og tekjuhærra heimili. En hjá tekjulægra heimilinu jafngildir það um 26% af einum mánaðarlaunum fyrir skatt, samanborið við 11% hjá því tekjuhærra. Sama krónutala getur því haft gjörólík áhrif eftir tekjum, skuldastöðu og fjölskyldugerð. Þetta getur aukið ójöfnuð og þrengt mest að þeim sem hafa minnst svigrúm.
Tímasetningin skiptir líka miklu máli. Neyslan er þegar farin að gefa eftir. Raunvirði kortaveltu dróst saman um 2% milli ára í ágúst og innlend kortavelta um 2,6%. Þetta gerist á sama tíma og stýrivextir eru 8% og peningastefnan þegar mjög aðhaldssöm. Þegar ríkisfjármálin bæta ofan á þetta með hærri gjöldum og minni stuðningi við heimilin er hætt við að neysla dragist enn frekar saman. Það kemur ekki aðeins niður á fjölskyldum heldur getur einnig haft áhrif á fyrirtæki, störf og hagvöxt.
Það er einmitt á svona tímum sem samspil ríkisfjármála og peningastefnu skiptir mestu. Markmiðið hlýtur að vera að ná niður verðbólgu án þess að þrengja óþarflega mikið að heimilum og dýpka niðursveifluna.
Þess vegna þarf að endurmeta fjárlagafrumvarpið út frá áhrifum þess á heimilin. Það þarf að birta skýra dreifingargreiningu eftir tekjum og fjölskyldugerðum og skoða samanlögð áhrif breytinganna, ekki aðeins hvern lið fyrir sig.
Heimilissátt Framsóknar byggist á þeirri einföldu hugsun að verja kaupmátt, halda aftur af gjaldahækkunum og draga úr högginu á heimilin á meðan verðbólga og vextir eru enn há. Samkvæmt okkar útreikningum mun nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar til að framlengja kjarasamninga bara að litlu leyti koma í veg fyrir að þessi hái reikningur bitni illa á heimilum landsins.
Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 8. október 2026



