Þingsályktunartillaga Höllu Hrundar um jarðakaup erlendra aðila samþykkt á Alþingi
Fréttir

Rétt í þessu var þingsályktunartillaga Höllu Hrundar Logadóttur samþykkt á Alþingi!
Málið varðar takmörkun jarðakaupa útlendinga á Íslandi. Tillagan tók breytingum í þinginu og var samþykkt svohljóðandi:
Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra í samráði við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, innviðaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að skipa sérfræðihóp sem falið verði að greina eignarhald erlendra aðila á jörðum hérlendis og greina framtíðaráskoranir því tengdar og hvort þörf sé á að leggja til breytingar á lögum sem hafa muni það að markmiði að takmarka frekar jarðakaup erlendra aðila hér á landi eða aðrar ráðstafanir. Starfshópurinn skili skýrslu sem verði nýtt sem innlegg í fyrirhugað frumvarp um breytingu á jarðalögum sem verður lagt fram af atvinnuvegaráðherra á 158. löggjafarþingi, líkt og kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ráðherra skuli leggja skýrsluna fram á Alþingi.
——
Hér má sjá nefndarálit meirihluta Allsherjar- og menntamálanefndar. Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar, var framsögumaður málsins.
https://www.althingi.is/altext/157/s/0073.html
——
Feril málsins á Alþingi má sjá hér:
https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/73/?ltg=157&mnr=73


