„Til hvers að fara í viðræður ef menn ætla að segja nei?“
Fréttir

Þórarinn Ingi, þingmaður Framsóknar, kallaði eftir skýrri afstöðu innviðaráðherra til fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi.
Í fyrirspurn sinni lagði Þórarinn áherslu á að hann sjálfur væri skýr andstæðingur aðildar Íslands að Evrópusambandinu og hlynntur því að þjóðin fengi að segja hug sinn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann benti þó jafnframt á að lýðræðislegur réttur þjóðarinnar væri ekki aðeins að taka þátt í slíkri atkvæðagreiðslu, heldur einnig að segja nei.
Þórarinn beindi spurningu sinni til Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra og óskaði eftir afdráttarlausu svari um það hvort ráðherrann hygðist greiða atkvæði með eða á móti því að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
„Það er ekki nóg að segja að menn segi nei við aðild að Evrópusambandinu,“ sagði Þórarinn og spurði hvort ráðherrann hygðist segja já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Eyjólfur svaraði því til að þjóðaratkvæðagreiðslan væri leynileg og að hann hygðist ekki birta atkvæði sitt opinberlega. Hann ítrekaði þó að Flokkur fólksins væri ekki hlynntur aðild Íslands að ESB og sagði ljóst að ef menn hefðu ekki áhuga á að ganga í félag færu þeir ekki að sækja um inngöngu í það.
Þórarinn lét sér svarið ekki nægja og sagði það varpa skugga á þá hreinskilni sem hann hafði áður þakkað ráðherranum fyrir. Hann benti á að málið snerist einmitt um þá mótsögn að vera yfirlýstur andstæðingur ESB-aðildar en vilja samt vísa þjóðinni í atkvæðagreiðslu um framhald umsóknarferlis.
„Ef menn eru algerlega yfirlýstir hvað það varðar að segja nei við aðild að Evrópusambandinu, til hvers þá að fara í viðræður?“ spurði Þórarinn. Hann lagði áherslu á að þjóðin eigi rétt á skýrum svörum frá ráðherrum og stjórnmálaflokkum áður en hún gengur til atkvæða.
Eyjólfur svaraði síðar að þjóðin væri spurð þeirrar einföldu spurningar hvort halda ætti áfram með aðildarumsóknina eða ekki. Hann ítrekaði að afstaða Flokks fólksins væri skýr og vísaði til þess að málið væri lagt „í dóm þjóðarinnar“.
Þórarinn Ingi svaraði því hins vegar að ekki væri nóg að lýsa sig andvígan ESB-aðild almennt, heldur þurfi kjörnir fulltrúar einnig að svara því skýrt hvort þeir vilji í raun halda umsóknarferlinu áfram eða stöðva það.


