Þórarinn Ingi krefst aðgerða vegna kartöflubænda: „Grafalvarleg staða“

Fréttir

Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknar, kallaði eftir skýrum aðgerðum stjórnvalda vegna stöðu íslenskra kartöflubænda í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi 1. júní. Hann sagði stöðuna grafalvarlega og benti á að innlend framleiðsla ætti undir högg að sækja gagnvart innfluttum kartöflum, meðal annars vegna úreltrar tollverndar.

Þórarinn Ingi vakti athygli á því að kartöfluuppskera ársins 2025 hefði verið mjög góð og að miklar birgðir væru enn í geymslum. Þrátt fyrir það stefndi nú í að henda þyrfti fleiri hundruð tonnum af íslenskum kartöflum á sama tíma og innfluttar kartöflur kæmu tollfrjálst til landsins í júní.

„Innlend framleiðsla lýtur í lægra haldi fyrir erlendri framleiðslu,“ sagði Þórarinn Ingi og vísaði til þess að undanþága frá árinu 2021, sem heimilaði tollfrjálsan innflutning á kartöflum í júní, væri enn í gildi. Sú undanþága hefði upphaflega verið sett vegna slæmrar uppskeru árið 2020, en nú væru aðstæður allt aðrar.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra staðfesti í svari sínu að fyrirkomulagið byggði á samkomulagi frá árinu 2021 sem hefði verið framlengt óbreytt og gilti nú til ársloka 2026. Hún sagði málið þekkt innan ráðuneytisins og að það væri til skoðunar í tengslum við endurskoðun búvörusamninga og starfsumhverfi landbúnaðarins.

Þórarinn Ingi lét þar ekki staðar numið og beindi sjónum að tollverndinni sjálfri. Hann benti á að magntollur á kartöflur væri 60 krónur á kíló, en sú krónutala hefði verið ákveðin árið 2002. Það væri augljóst að forsendur hefðu gjörbreyst á þeim tíma.

„Þetta eru eldgamlar krónutölur sem við byggjum á,“ sagði Þórarinn Ingi og bætti við að innlend framleiðsla ætti verulega erfitt með að keppa við innflutta framleiðslu þegar tollverndin fylgdi ekki verðlagsþróun eða breyttu efnahagsumhverfi.

Ráðherra tók undir meginatriði gagnrýni Þórarins Inga og sagði að ef tollar væru hluti af starfsumhverfi landbúnaðarins yrði að tryggja að þeir virkuðu. Hún sagði þróunina ekki góða og að skoða þyrfti fyrirkomulagið.

Með fyrirspurninni setti Þórarinn Ingi þrýsting á ríkisstjórnina um að bregðast við stöðu kartöflubænda og víðari vanda innlendrar matvælaframleiðslu. Hann sagði málið ekki aðeins snúast um kartöflur heldur einnig aðrar greinar landbúnaðar, svo sem kjöt-, grænmetis- og aðra innlenda framleiðslu sem búi við úrelta tollvernd og harða samkeppni frá innflutningi.


Umræðuna í heild má sjá hér:

https://www.althingi.is/altext/upptokur/lidur/?lidur=lid20260601T104623