Vatnið finnur alltaf sinn farveg
Greinar

Af mörgum illa undirbúnum, órannsökuðum og ófyrirséðum skattahækkunum hlýtur Bláskógaskatturinn að vera ein furðulegustu áform ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur í gjaldtöku og nýjum sköttum. Rökin virðast bara vera, af því bara. Ráðherrar Viðreisnar og Samfylkingar keppast um að hafa átt hugmyndina að auðlindagjaldi á ferðaþjónustuna. Að þeirra sögn áttu allir að vita að þetta væri að koma. Spunameistari ríkistjórnar sagði frá þessu snemma árs og í frumvarpi til fjárlaga birtist þetta í annarri viku september. Útfærsla á fimm milljarða skatta- og gjaldahækkun á gesti Þingvalla, Geysis og Gullfoss, sem vel að merkja á að taka gildi eftir nokkra mánuði, liggur hinsvegar ekki enn fyrir. Frumvarpið er ekki enn komið fram á alþingi, þó svo það eigi væntanlega að vera hluti fjárlaga og taka þannig gildi eftir 6 vikur! (þessi grein er rituð á miðjum mánudegi 16. nóvember).
Ekkert áhrifamat, ekkert áhættumat. Þó er verið að hækka baðlóna virðisaukaskatt frá og með áramótum samhliða verulegri hækkun á kílómetragjaldi sem mun hafa áhrif á akstur bílaleigubíla.
Það eru 3 baðlón í uppsveitum Árnessýslu, það fjórða í byggingu. Ekkert áhrifamat á ferðaþjónustuna, eða áhættumat á sveitarfélögin vegna minni tekna, minni umsvifa. Ekkert!! Þingmenn Suðurkjördæmis funduðu um daginn og munu krefjast þess að fyrir liggi áhrifamat á fyrirtæki og sveitarfélög, áður en þessar hækkanir taka gildi.
Ráðherrann segir hinsvegar, ef þetta gangi illa verði málið endurskoðað, eða hætt við! Ég spyr hvenær kemur það í ljós? Hvernig kemur það í ljós? Er ráðherrann að vísa til þess að ef ferðamönnum fækkar um – eigum við að segja 10% - þá hafi þetta gengið illa? Eða ef að fleiri en 3 ferðaþjónustu fyrirtæki verði gjaldþrota? Eða er nóg að það verði 10% samdráttur í tekjum fyrirtækja, evt sveitarfélaga? Hvað má atvinnuleysi vaxa mikið áður en ráðherrann segir þessa tilraun fullreynda?!
Vatnið finnur alltaf leið
Á sama tíma reyna fyrirtækin að finna nýjar leiðir til að geta boðið ferðamönnum að skoða perlur uppsveita. Nú er til að mynda til skoðunar að bæta aðgengi að Gullfossi austan megin. Af hverju? Jú af því að þar verður engin gjaldtaka. Ríkið á þar enga hagsmuni. Fossinn er líka gullfallegur þeim megin frá. En er þetta skynsamlegasta leiðin? Eða sú besta frá umhverfislegum sjónarmiðum? Auðvitað er svarið nei.
En eins og vatnið sem finnur alltaf sína leið þá leitar markaðurinn leiða. Sumir munu án efa hætta við að koma í uppsveitir Árnessýslu með tilheyrandi tekjumissi fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og samfélög. Aðrir munu leita nýrra leiða.
Verður t.a.m. rukkað fyrir þá sem skoða Þingvelli frá vatninu? Eða úr lofti? Verður hægt að skoða Geysi með öðrum hætti en nú er gert – og þá án gjaldtöku.
Eða verða rukkarar ríkisstjórnarinnar út um allt pikkandi í axlir ferðamanna og spyrja um passa, með tilheyrandi neikvæðri upplifun okkar gesta. Verður uppbyggingin á austurbakka Hvítár mun meiri en sú sem við þekkjum í dag vestan megin og mun þá ferðaþunginn verða austan megin? Það veit engin svörin – það er ekkert áhrifamat!
Hvað er skynsamlegast
Auðvitað er skynsamlegast og vænlegast til árangurs að fresta hækkun á vsk á baðlón til 1. janúar 2028 – nú eða hætta alfarið við hann. Varðandi Náttúru- og innviðagjald hljómar mun skynsamlegra að láta það ná til allra þjóðgarða og friðlýstra svæða í eigu ríkisins og hafa það gjald hóflegt. Samhliða varfærinni innheimtu yrði farið í markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað og nýtt Náttúru- og innviðagjald kynnt, til að auka greiðsluvilja. Þannig mun það gjald skila mun meiri tekjum en núverandi áform og án þess að upplifun ferðamenna verði neikvæð. Ef vel tekst til með markaðssetningu munu aukin umsvif ferðaþjónustunnar skila hærri fjárhæðum í ríkiskassann en hinar gölnu, ófyrirséðu og órannsökuðu hugmyndir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
Sigurður Ingi Jóhannsson
Höfundur er þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi.



