Framboðsreglur fyrir alþingiskosningar

Framboðsreglur fyrir alþingiskosningar

Framboðsreglur fyrir alþingiskosningar

Framboðsreglur

Framboðsreglur

Lög Framsóknarflokksins um framboð við alþingiskosningar
Framboðslisti við alþingiskosningar
  • Kjördæmissamband Framsóknarflokksins í hverju kjördæmi skal bjóða fram lista flokksins.

  • Ef eitt kjördæmissamband starfar í Reykjavík, er heimilt að bjóða fram lista í báðum Reykjavíkurkjördæmum (norður og suður).

Aðferðir við val á framboðslista

Kjördæmisþing ákveður aðferð við val á lista og gengur frá framboðslistanum.

Reglur um framboð skulu liggja fyrir að minnsta kosti 6 mánuðum fyrir reglulegar kosningar.

Mögulegar framboðsleiðir (samkvæmt gr. 5.1 í lögum Framsóknarflokksins):
  1. Rafræn kosning

  2. Lokað prófkjör

  3. Tvöfalt kjördæmisþing

  4. Uppstilling

  5. Opið prófkjör

Lagaákvæði samþykkt árið 2011

Á flokksþingi árið 2011 voru samþykktar breytingar sem innleiddu sérstakan kafla um framboðsmál.

Markmið: að setja skýrari ramma um ferlið og tryggja samræmi milli kjördæma.

Innihald laganna felur ísér:

Skýrar leiðir við val á lista

Tímasetningar og fresti varðandi kosningarétt og kjörgengi

Framboðsleiðir þróaðar í samstarfi við flokksmenn

Framboðsleiðir þróaðar í samstarfi við flokksmenn

Markmið framboðsreglna

Framboðsreglurnar eru hannaðar til að tryggja:

Jöfn tækifæri fyrir alla til að bjóða sig fram

Félagsmenn hafi raunveruleg áhrif

Að þeir einir hafi áhrif sem eðlilegt er að hafi það

Sátt og traust í ferlinu og niðurstöðum

Samræmi milli framboðs og stefnumörkunar flokksins

Viðmiðunarreglur fyrir sveitarstjórnarkosningar

Landsstjórn Framsóknar hefur samþykkt samræmdar viðmiðunarreglur um val á framboðslista sem gilda um alla valkosti í öllum sveitarfélögum. Kjördæmaþing, fulltrúaráð eða félagsfundur í hverju sveitarfélagi tekur ákvörðun um aðferð við röðun á lista.

Fjórar leiðir í boði við val frambjóðenda

Sveitarfélög geta valið eina af eftirfarandi aðferðum við val á frambjóðendum: a) rafræn kosning, b) lokað prófkjör, c) uppstilling og d) opið prófkjör. Jafnframt var samþykkt að Kjördæmasambandið í Reykjavík gæti viðhaft tvöfallt kjördæmaþing við val á frambjóðendum.

Aðildarfélög í viðkomandi sveitarfélagi bera ábyrgð á framboði til sveitarstjórnar, ákveða aðferð við val frambjóðenda, sjá um framkvæmd valsins og ganga frá framboðslista. Ef framboð er í samstarfi við aðra flokka eða samtök setur fulltrúaráð/félagsfundur framsóknarfélags reglur um framkvæmd slíks samstarfs.

Landsstjórn samþykkt að ekki skulu vera fleiri en þrír af sama kyni í 5 efstu sætum framboðslistans. Jafnframt gildir að framboðslisti skuli hlutur hvors kyns ekki vera lægri en 40%, nema þegar gagnsæjar og augljósar ástæður eru því til fyrirstöðu.

Kjörskrá lokar 30 dögum fyrir valdag og framboðsfrestur rennur út 15 dögum fyrir valdag.

Aðferð við val: Rafræn kosning, lokað prófkjör, uppstilling eða opið prófkjör. Tvöfalt kjördæmaþing er heimilt að viðhafa í Reykjavík.

Valdagur: Dagsetning

Að þeir einir hafi áhrif sem eðlilegt er að hafi það

Sátt og traust í ferlinu og niðurstöðum

Samræmi milli framboðs og stefnumörkunar flokksins