Atvinnulíf og nýsköpun

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um atvinnulíf og nýsköpun

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnulíf og nýsköpun

PDF

Atvinnulíf og nýsköpun 

  1. Framsókn telur nauðsynlegt að nýta allar auðlindir landsins með skynsamlegum og sjálfbærum hætti svo hægt sé að tryggja komandi kynslóðum aðgang að þeim. Á síðustu árum hefur fjölbreytni atvinnulífsins stóraukist samhliða hröðum tækniframförum, áherslu á nýsköpun og skapandi greinar og miklum vexti ferðaþjónustunnar.  

  2. Framsókn vill efla íslenskt atvinnulíf með því að draga úr hindrunum í gildandi regluverki og tryggja að ný löggjöf sé skýr og skilvirk. Skjóta þarf fleiri stoðum undir innlenda verðmætasköpun, svo sem uppbyggingu í skapandi greinum og hugverkaiðnaði ásamt því að styðja við helstu útflutningsgreinar þjóðarinnar. Með því aukum við samkeppnishæfni og sveigjanleika íslensks atvinnulífs. 

  3. Framsókn vill hlúa að núverandi atvinnulífi og smærri fyrirtækjum, ásamt því að auka fjölbreytni atvinnulífsins með nýsköpun og uppbyggingu nýrra atvinnugreina um allt land. Eigi slík uppbygging að eiga sér stað er mikilvægt að huga að umhverfi nýsköpunar og sprota, fjármögnunar- möguleikum, menntun þjóðarinnar og regluverkinu sem sprotafyrirtæki og atvinnulífið í heild sinni býr við. Ýtt verði undir nýsköpun og fjárfestingu þar sem um er að ræða verkefni og iðnað sem byggja á sjálfbærni, nýtingu og fullvinnslu hráefnis, umhverfisvænum lausnum og styðja við orkuskipti.  

  4. Framsókn vill hvetja til enn frekari fjárfestinga á sviði hugverkaiðnaðar með fjárfestingastuðningi við verkefni sem skapa verðmæti og störf fyrir þjóðina. Framsókn vill nýta tækniþróun til að auka framleiðni hér á landi, t.d. með því að styrkja Tækniþróunarsjóð og bæta skattaumhverfi lítilla fyrirtækja, nýsköpunarfyrirtækja sem og frumkvöðla. Hvatt sé til myndunar klasa á ólíkum sviðum vítt og breitt um landið með fjármagni til aðstöðu og innviða.   

Verslun og þjónusta 

  1. Framsókn vill tryggja að til staðar sé öflugt regluverk sem kemur í veg fyrir fákeppni á markaði. Mikilvægt er að fylgjast vel með þróun á dagvörumarkaði og grípa strax til aðgerða ef samþjöppun verður of mikil. Veita þarf litlum og meðalstórum dagvörufyrirtækjum aðstoð til að koma í veg fyrir fákeppni t.d. í formi hvata, styrkja eða tæknilegrar aðstoðar. Einnig skal finna leiðir til að hvetja til nýsköpunar á öðrum dreifileiðum svo sem bændamörkuðum og styðja við innlenda framleiðslu. 

  2. Framsókn telur mikilvægt að verslun og þjónusta búi við samkeppnishæft umhverfi og skilvirkt regluverk. Stjórnvöld þurfa að stuðla að heilbrigðri samkeppni á neytendavörumarkaði. Rekstur matvöruverslana í minni byggðarlögum er mikilvægur þáttur í að viðhalda grunnþjónustu um land allt.  

  3. Framsókn vill efla stuðning við verslanir í smærri byggðakjörnum í þágu nærsamfélagsins, enda er rekstur matvöruverslana oft hjartað í hverri byggð. 

Nýsköpun og frumkvöðlastarf 

  1. Framsókn vill auka rannsóknir, vísindastarf og nýsköpun á landsbyggðunum í samræmi við sóknaráætlun landshlutanna. 

  2. Framsókn leggur áherslu á fjölgun tækifæra fyrir atvinnuskapandi frumkvöðlastarf. 

  3. Framsókn telur nýsköpun lykil að aukinni verðmætasköpun og bættri auðlindanýtingu. 

Rannsóknir og vísindi

Opinber stuðningur við vísindarannsóknir 

  1. Framsókn leggur áherslu á að standa vörð um öfluga háskóla í landinu. Einnig eiga Íslendingar öflug rannsóknarfyrirtæki sem hafa verið í fararbroddi á sínum sviðum.  

  2. Framsókn vill að opinber stuðningur verði áfram veittur til stuðnings við rannsóknaverkefni af öllum toga bæði í þágu vísinda og frekari nýsköpunar og  atvinnusköpunar hér á landi. 

  3. Framsókn vill að stutt verði við námsmenn sem mennta sig við mikilvægar greinar á sviði vísinda og nýsköpunar, t.d. með hæfilegum námslánum til að sækja nám erlendis sem ekki býðst hér á landi. 

Fjármögnun og stuðningsumhverfi nýsköpunar 

  1. Framsókn leggur til að skattalegir hvatar til einstaklinga sem kaupa hlutafé í sprotafyrirtækjum verði að varanlegu ákvæði í skattalögum, en talið er að hagrænn ábati slíks fyrirkomulags yrði hærri en kostnaður við þá aðgerð. Skoða skal möguleika þess að fyrirtæki, sem styrkja nýsköpunarstarfsemi, njóti skattalegs hagræðis. 

  2. Framsókn styður starfsemi Rannís og styrkjakerfi þess sem er mikilvægt fyrir bæði frumkvöðla og nýsköpun almennt. 

  3. Framsókn vill að fjármagn til helstu nýsköpunarsjóða, s.s. Tækniþróunarsjóðs verði aukið. Síðastliðin ár hafa verkefni sem hafa sterkar grunnstoðir og góða vaxtarmöguleika ekki hlotið styrk vegna skorts á fjármagni. Einnig vill Framsókn bæta skattaumhverfi nýsköpunarfyrirtækja sem og frumkvöðla. Ýta þarf undir frekari nýsköpun með fjölbreyttari styrkjamöguleikum fyrir sprotafyrirtæki. 

  4. Framsókn vill að bætt sé við flokki í viðmiðunarreglum reiknaðs endurgjalds hjá Ríkisskattstjóra fyrir sprotafyrirtæki. Ein helsta leið frumkvöðla til að fjármagna fyrirtæki sín á allra fyrstu árum er með eigin framlagi til fyrirtækisins. Nýr flokkur myndi gera frumkvöðlum kleift að halda niðri þróunarkostnaði þar til nægt fjármagn næst til verkefnisins án þess að missa réttindi á vinnumarkaði. Í dag þurfa frumkvöðlar að reikna sér samkeppnishæf laun of snemma í þróunarferlinu sem aftrar oft uppgangi fyrirtækjanna á fyrstu þróunarstigum. 

Frumkvöðlar 

Samfélagsfrumkvöðlar 

  1. Framsókn vill að stjórnvöld styðji við starfsemi samfélagsfrumkvöðla með margvíslegum hætti á sama máta og t.d. er gert fyrir hefðbundin fyrirtæki sem starfa í ágóðaskyni og rannsóknastarfsemi í þágu vísinda og nýsköpunar.