Ferðaþjónusta

Ferðaþjónusta
Framsókn vill auka möguleika á búsetu og störfum á öllu landinu og þar gegnir ferðaþjónustan mikilvægu hlutverki. Lítil og meðalstór fyrirtæki í eigu heimafólks á hverjum stað skila ábata inn í samfélögin og skapa grundvöll til frekari uppbyggingar þjónustu og annarrar starfsemi á svæðinu.
Framsókn telur grunninn að verðmætasköpun í ferðaþjónustu vera að hún sé sjálfbær, arðbær og samkeppnishæf ásamt því að starfa í sátt við land og þjóð.
Framsókn vill styrkja umgjörð ferðaþjónustunnar og skapa henni betri skilyrði til að vaxa og dafna í takt við áherslur í ferðamálastefnu og aukna verðmætasköpun. Framsókn telur ljóst að hækkun á virðisaukaskatti á ferðaþjónustu í efra þrep muni leiða til verðhækkana og hafa mjög neikvæðar afleiðingar á samkeppnishæfni landsins. Reynsla nágrannaþjóða sýnir að breytingar hafa ekki aðeins áhrif til skamms tíma heldur einnig á aðsókn til lengri tíma. Ísland er nú þegar einn dýrasti áfangastaður heims.
Framsókn vill viðhalda og styrkja ímynd og orðspor áfangastaðarins Íslands. Markviss, stöðug og heildstæð markaðssetning skilar miklum þjóðhagslegum ábata fyrir landið og hefur hliðaráhrif á aðrar útflutningsgreinar á erlendri grundu.
Framsókn telur mikilvægt að markaðssetning Íslands, íslenskrar ferðaþjónustu og á íslenskum vörum sé ávallt unnin af fagmennsku og í samræmi við þær áherslur sem fram koma í ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun hennar.
Framsókn vill tryggja langtímafjármögnun neytendamarkaðssetningar á vegum Íslandsstofu til þess að tryggja markvissa, stöðuga og heildstæða markaðssetningu til erlendra ferðamanna sem skilar þjóðhagslegum ábata fyrir landið og hefur hliðaráhrif á aðrar útflutningsgreinar á erlendri grundu. Þetta væri í samræmi við það sem gert í okkar helstu samkeppnislöndum s.s. á norðurlöndum.
Framsókn vill að unnið verði áfram að uppbyggingu innviða í takt við hóflegan vöxt ferðamanna til þess að vernda náttúru landsins og tryggja jákvæða upplifun ferðamanna.
Framsókn vill að áhersla sé lög á að innviðir í ferðaþjónustu séu byggðir upp á sjálfbæran hátt og hönnun þeirra falli vel að umhverfinu.
Framsókn leggur áherslu á styrkingu millilandaflugs um Akureyri og Egilsstaði til að stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um landið. Tryggja þarf samkeppnishæfni flugvallanna m.t.t. aðstöðu, lendingargjalda og eldsneytisverðs. Byggja þarf upp samhæft samgöngunet í landinu, sem tengir saman innlent og alþjóðleg samgöngunet, hvort heldur sem er flug eða áætlunarferðir á sjó og landi.
Framsókn leggur áherslu á að ekki skuli lokað á aðgengi að stórum hluta landsins, eða einstökum landsvæðum nema brýna nauðsyn beri til.
Framsókn telur mikilvægt að byggja upp heildstætt skipulag ferðaþjónustu hér á landi til að koma í veg fyrir átroðning og neikvæð umhverfisáhrif. Það er hagur bæði ríkis og sveitarfélaga að skapa heildstæða áætlun um landnýtingu og stýringu ferðamanna um landið.
Framsókn styður að nýttar séu aðgangsstýringar í formi sértækrar gjaldtöku á þeim svæðum þar sem ágangur er mikill og uppbygging og viðhald innviða kostnaðarsöm. Slík gjaldtaka tryggir staðbundnar tekjur sem renna ættu að öllum hluta til þeirra aðila sem sjá um uppbyggingu og verndun svæðisins. Rétt útfærsla myndi tryggja fjármagn til uppbyggingar nauðsynlegra innviða á svæðunum með öryggi, upplifun og náttúruvernd að leiðarljósi.
Framsókn telur að rétt útfærsla á staðbundinni aðgangsstýringu stuðli að dreifingu ferðamanna bæði um landið og yfir árið. Gjaldtaka af þessu tagi getur þannig orðið að verkfæri sem gerir ríki, sveitarfélögum og öðrum hagsmunaaðilum kleift að byggja upp innviði ferðaþjónustunnar með ábyrgari og árangursríkari hætti með tryggri fjármögnun.
Framsókn telur nauðsynlegt að endurskoða starfsumhverfi ferðaþjónustunnar með það að markmiði að það sé samkeppnishæft. Einfalda þarf rekstrarumhverfið ásamt því að auka skilvirkni og hvetja til aukinnar nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi í greininni. Gera þarf kröfu til þess að erlend ferðaþjónustufyrirtæki sem starfa hér á landi uppfylli sömu kröfur og gerðar eru til innlendra ferðaþjónustufyrirtækja. Skýra þarf lög og reglur um starfsemi erlendra aðila hér á landi svo jafnræðis sé gætt og til þess að hægt sé að koma í veg fyrir félagsleg undirboð. Huga þarf að virkara eftirliti með ólöglegri atvinnustarfsemi í greininni og tryggt verði að þeir sem eru uppvísir að broti fái viðeigandi og íþyngjandi refsingu. Hlutverk slíks eftirlits er einnig til þess falið að tryggja gæði ferðaþjónustu með áherslu á neytendavernd, menningu og vernd náttúru landsins.
ETS-gjöld og loftslagsálögur
Að íslensk stjórnvöld leiti markvisst leiða til að lækka eða milda þær álögur sem leggjast harðast á íslensk fyrirtæki sem starfa undir ETS og tengdum kerfum.
Að Ísland beiti sér gagnvart Evrópusambandinu fyrir útfærslum sem taka mið af sérstöðu eyþjóða og ríkja þar sem flug og skipaflutningar er grunninnviður samgangna.
Að tryggt verði að loftslagsaðgerðir í flugi styðji raunverulega við orkuskipti, nýsköpun og minni losun, án þess að veikja samkeppnishæfni íslensks flugs eða tengingar landsins við umheiminn.
Uppbygging ferðamannastaða
Framsókn vill tryggja fjármagn til uppbyggingar og viðhalds ferðamannastaða um allt land, með sérstaka áherslu á menningartengda ferðaþjónustu.
Framsókn leggur áherslu á jafnvægi milli hagnýtingar, samfélagslegs ávinnings og náttúruverndar.
Framsókn vill styðja uppbyggingu fluggátta um Akureyri og Egilsstaði. Framsókn telur slíkar aðgerðir stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna og auknu öryggi.