Viðskipti, samkeppni og neytendur

13. febrúar 2026
13. febrúar 2026
13. febrúar 2026

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um efnahagsmál

PDF

Flokksþingsályktun um efnahagsmál

PDF

Flokksþingsályktun um efnahagsmál

PDF

Green Fern
Green Fern
Green Fern

Viðskipti, samkeppni og neytendur

Skilvirkt og öflugt umhverfi viðskiptalífs, samkeppnis- og neytendamála er viðvarandi áskorun. Framsókn vill skilvirka umgjörð viðskiptalífs, styrkja samkeppni innanlands, tryggja stöðu neytenda betur í nýju umhverfi viðskipta og efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Samkeppnishæfni Íslands

Hagkerfi Íslands er örhagkerfi, í alþjóðlegu samhengi. Sem slíkt er það Íslandi mjög mikilvægt að vera samkeppnishæft á alþjóðamarkaði. Aðeins með þeim hætti er hægt að tryggja jákvæðan gjaldeyrisjöfnuð og aukinn hagvöxt hér á landi. Framleiðni hefur ekki verið í takt við launaþróun síðastliðin ár, ef sú þróun heldur áfram mun það bitna verst á launþegunum sjálfum. Tryggja þarf að bein tengsl séu á milli framleiðni íslensks vinnuafls og launaþróunar svo að íslensk fyrirtæki séu samkeppnishæf á alþjóðamarkaði, sem er megin forsenda fyrir framtíðar hagsæld hér á landi.

Skilvirk umgjörð viðskiptalífs og virkt samkeppniseftirlit

Framsókn vill stuðla að aukinni samkeppnishæfni og sveigjanleika íslensks atvinnulífs með því að draga úr hindrunum í gildandi regluverki og tryggja að ný löggjöf sé skýr og skilvirk. Umgjörð og leikreglur viðskiptalífsins eiga að vera einfaldar og skýrar og til þess fallnar að stuðla að góðum viðskiptaháttum í þágu samfélagsins alls. Sérstaklega sé horft til þess að regluverk lítilla og meðalstórra fyrirtækja sé ekki of íþyngjandi. Framsókn vill tryggja að ákvæðum laga um kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja sé framfylgt, fleiri konur veljist sem æðstu stjórnendur og útrýma óútskýrðum launamun kynja.

Framsókn telur brýnt að ábati samkeppninnar skili sér til neytenda. Skilvirkt og öflugt eftirlit með samkeppni og starfsháttum fyrirtækja er mikilvægur þáttur í því. Efla þarf Samkeppniseftirlitið til að það geti uppfyllt og framkvæmt lögbundin verkefni sín. Æskilegt er að umgjörð samkeppnislöggjafar hér standist samanburð við önnur lönd er varðar sjálfstæði eftirlits, eftirlitsheimildir og rétt málsaðila í samkeppnismálum. Möguleg sameining eða samrekstur Samkeppniseftirlits og Neytendastofu komi til greina í þeim efnum.

Framsókn vill treysta grundvöll samvinnufélaga og einfalda stofnun þeirra með því að lækka lágmarksfjölda stofnenda úr 15 í 3. Fella þarf á brott heimild til að breyta rekstrarformi samvinnufélags í hlutafélag og tryggja betur að hagsmunir þeirra samfélaga þar sem samvinnufélög eru starfrækt njóti vafans ef til slita kemur á félagi.

Betri neytendavernd

Framsókn vill að áfram verði unnið að því að bæta rétt og stöðu neytenda þar sem fræðsla og aukin neytendavitund, skilvirkt markaðseftirlit og góðir markaðshættir, samstarf atvinnulífs og hagsmunasamtaka á sviði neytendamála verði haft að leiðarljósi. Auka þarf rétt neytenda með heildarendurskoðun á löggjöf á sviði neytendamála sem tekur meðal annars tillit til tækniþróunar og rétti neytenda í netviðskiptum, til dæmis er varðar vöruöryggi og bætta þjónustu við neytendur.

Auka þarf neytendavernd tengda fjármálaþjónustu með bættri upplýsingagjöf og leiðbeiningum vegna lánveitinga til neytenda. Áfram þarf að veita fyrirtækjum á fjármálamarkaði aðhald með árlegum úttektum á arðsemi og gjaldtöku þeirra ásamt því að tryggja Seðlabanka Íslands skýrar heimildir til þess að koma á fót innlendri greiðslumiðlun sem lækka myndi kostnað fyrir neytendur og íslenska söluaðila ásamt því að bæta þjóðaröryggi á sviði greiðslumiðlunar. Huga þarf að stöðu viðkvæmra hópa, svo sem börnum, eldri borgurum og fólki með fötlun, með sérstökum verndarráðstöfunum á sviði neytendamála. Í því samhengi má meðal annars endurskoða regluverk smálána.

Tryggja skal með lagabreytingu að allar auglýsingar til neytenda verði á íslensku, með það að markmiði að bæta stöðu íslenskra neytenda sem og tungumálsins. Gera þarf neytendum betur kleift að taka upplýstar ákvarðanir við kaup á vöru og þjónustu út frá sjálfbærni, meðal annars með áherslu á vörumerkingar og réttar upplýsingar.